Á þriðjudag kynnti Björk kápumynd væntanlegrar plötu sinnar, Utopia, á samskiptamiðlum. Heiðurinn af myndverkinu á listamaðurinn Jesse Kanda, í samstarfi við Björk.
Tónlistarkonan tilkynnti um leið að platan kæmi út í lok nóvember og lét fylgja með hlekk á síðu þaðan sem er hægt að nálgast verkið í forsölu.
Björk segist kynna verkið með yfirþyrmandi auðmýkt, og vera þakklát „út fyrir tunglið og Júpiter“ fyrir samstarf við hinn görótta Arca fyrir samstarf að tónlist plötunnar.
Eftir þær hráu og stríðu tilfinningar sem listamaðurinn tjáði á plötunni Vulnicura, í kjölfar erfiðra sambandsslita, hefur hún sagt að nýja platan feli í sér bjartari liti og hlýrri kenndir, „hlutdeild í útópíu fyrir mér, sem er þegar brosandi raunveruleg“.
Allir helstu tónlistarmiðlar heims hafa þegar gert verkinu skil – að því leyti sem slíkt er hægt fyrir útgáfu. Í viðtali við tímaritið Dazed sagði Björk að frammi fyrir vaxandi útlendingastyggð og ógninni af loftslagsbreytingum hafi hún viljað spyrja, á plötunni, hvort paradís standi til boða. „Kannski varð þemað þess vegna útópískt – ef við ætlum að komast í gegnum, ekki bara mitt persónulega drama heldur stöðuna sem heimurinn er kominn í, þá þurfum við að setja fram nýja áætlun,“ sagði hún. „Ef við eigum ekki drauminn, þá munum við bara ekki breytast. Sérstaklega núna er draumur af þessum toga nauðsynlegur.“
One Little Indian gefur plötuna út. Fyrsta myndband við lag af plötunni kom út þann 17. september. Lagið heitir The Gate:



