Í dag, 7. nóvember, eru hundrað ár liðin frá uppreisninni í Pétursborg, þegar rauðliðaher bolsévika, undir forystu Vladímírs Ilyich Lenín, tók með áhlaupi yfir aðsetur helstu valdastofnana hins nýstofnaða Sovét-Rússlands. Valdatakan heppnaðist, uppreisnin varð að upphafsviðburði rússnesku októberbyltingarinnar og þar með Sovétríkjanna. Atburðurinn er einn áhrifamesti og um leið umdeildasti atburður 20. aldar.
Rússar studdust enn við júlíska tímatalið á þessum tíma, sem á Vesturlöndum hafði vikið fyrir því gregoríska – 7. nóvember að okkar tímatali hét 24. október í Rússlandi, og er því talað um októberbyltinguna.
Byltingin í beinni: Project1917
Fjöldi bóka hefur komið út í tilefni aldarafmælis byltingarinnar og vænta má að helstu fjölmiðlar heims birti fjölda greina um efnið í dag og næstu daga. Eitt þeirra verkefna sem stofnað hefur verið til á netinu til að minnast byltingarinnar er Project1917, þar sem sagðar eru fréttir af framvindu hennar, dag fyrir dag, eins og í beinni útsendingu, frá upphafi árs. Áhugasamir geta fundið útsendinguna á vefsíðu verkefnisins, á Twitter, Facebook og Instagram.
#1917live: #Lenin: It is now absolutely clear that to delay the uprising would be fatal. https://t.co/1ba9hLSmE2 #Project1917 #PushkinHouse
— project1917 (@1917intweets) November 6, 2017
Upphafsmaður verkefnisins Project1917 er rússneski sjónvarps- og blaðamaðurinn Mikhaíl Zygar (1981), handhafi fjölmiðlafrelsisverðlauna CPJ 2014. Um bók hans, All the Kremlin’s Men, sem kom út árið 2015, sagði nóbelsverðlaunahafinn Svetlana Alexievich að þar færi fyrsta heildstæða lýsingin á öllu sem gerst hefði í Rússlandi fyrstu tuttugu árin frá falli Sovétríkjanna.




