Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

NATO hyggst opna nýja stjórnstöð á Atlantshafi – staðsetning ákveðin á næsta ári

$
0
0

Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins (NATO) tilkynntu eftir fund á miðvikudag að varnarviðbúnaður bandalagsins verði uppfærður í fyrsta sinn frá lokum kalda stríðsins, auk þess sem lögð verður aukin áhersla á netvarnir (cyber defense) í ljósi aukinnar spennu milli vestrænna ríkja og Rússlands.

Stjórnstöðvum bandalagsins verður fjölgað úr sjö í níu. Annarri hinna nýju stjórnstöðva verður sérstaklega ætlað að fást við varnir á Atlantshafi, en hin verður ábyrg fyrir flutningum herafla á meginlandi Evrópu. Verður staðsetning stjórnstöðvanna ákveðin á næsta ári.

Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi Utanríkisráðuneytisins, gat ekki veitt svör um málið þegar eftir því var leitað að morgni fimmtudags. Afstaða ráðuneytisins og hvort Ísland tók þátt í fundinum eða undirbúningi hans mun sjálfsagt skýrast þegar líður á daginn.

Nánar um málið hér.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images