Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Enn engu svarað um aðkomu Íslands að nýrri stjórnstöð NATO

$
0
0

Fjölmiðlafulltrúi Utanríkisráðuneytisins, svaraði fyrirspurn Kvennablaðsins um áform NATO um nýja stjórnstöð fyrir aðgerðir og eftirlit á Norður-Atlantshafi, með tölvupósti. Tilkynnt var um áformin eftir fund varnarmálaráðherra NATO-ríkjanna í Brussel á miðvikudag.

Fyrirspurnin, sem var borin upp við fjölmiðlafulltrúann í síma, var almenns eðlis en efnislega má þó líklega hluta hana í þrennt: Komu Íslendingar að þessari ákvörðun? Hver er afstaða Íslands í málinu? Og hefur möguleg staðsetning stjórnstöðvarinnar á Íslandi verið rædd á einhverjum vettvangi?

Í svari ráðuneytisins, sem birtist hér að neðan, kemur þó ekkert nýtt fram, nema ef vera skyldi að umræddan fund sótti, í fjarveru ráðherra, fastafulltrúi Íslands hjá NATO, en það mun vera Anna Jóhannsdóttir. Ofangreindum spurningum hefur aftur á móti ekki fengist svarað.

Enn hefur ekki náðst á Arnór Sigurjónsson, yfirmann Varnarmálaskrifstofu, sem annast nú málaflokkinn. Á síðum ráðuneytisins er Arnór titlaður skrifstofustjóri, en í erlendum miðlum kemur hann fram undir ýmsum nöfnum, þar á meðal „Chief of Defence“ og „försvarsminister“ eða varnarmálaráðherra.

Á vef Stjórnarráðsins er engar upplýsingar að finna um Varnarmálaskrifstofu. Að því er næst verður komist í samtölum við starfsfólk Utanríkisráðuneytisins var hún þó stofnuð nú í haust, sem „sjálfstæð skrifstofa“, eftir tillögum sem komu fram í skýrslu 1. september sl. Starfar þar fernt.

Svar ráðuneytisins
Unnið hefur verið að umbótum á skipulagi Atlantshafsbandalagsins, þ.m.t. herstjórnum þess, um nokkurra ára skeið til að mæta breyttu umhverfi öryggismála. Á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins á síðasta ári var meðal annars ákveðið að auka árvekni og eftirlit á norðanverðu Atlantshafi og á fundi varnarmálaráðherra bandalagsríkja, sem lýkur í dag í Brussel, var staðan tekin og ákveðið að halda vinnu áfram við endurskoðun á herstjórnarskipulagi Atlantshafsbandalagsins, meðal annars fyrir Norður Atlantshaf en einnig til að taka mið af nýjum ógnum og áhættuþáttum á borð við netöryggi. Málið verður tekið fyrir á nýjan leik á næsta fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins í febrúar nk. 


Allar ákvarðanir á vettvangi Atlantshafsbandalagsins eru teknar á grundvelli samstöðu. Fastafulltrúi Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu situr ráðherrafundinn í fjarveru utanríkisráðherra.


Uppfært eftir birtingu:Utanríkisráðuneytið bað Kvennablaðið, eftir birtingu þessarar fréttar, um að senda skriflega fyrirspurn um efnið, sem ritstjórn gerði upp úr hádegi föstudaginn 10. nóvember.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images