Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Þingkosningar í Katalóníu í dag

$
0
0

Í dag, fimmtudaginn 21. desember, verður gengið til kosninga í Katalóníu. Mjög mjótt er á mununum milli fylkinga þeirra flokka sem eru hlynntir sjálfstæði Katalóníu, stofnun lýðveldis og þar með aðskilnaði frá Spáni, og hinna sem vilja óbreytta stjórnskipan, það er að Katalónía teljist enn sjálfstjórnarsvæði innan spænska konungsríkisins.

Síðasta þing Katalóníu lýsti yfir sjálfstæði þess og aðskilnaði frá Spáni nú í haust, í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Í kjölfarið leystu spænsk stjórnvöld upp þingið, lýstu yfir neyðarástandi, tóku beina stjórn yfir héraðinu og boðuðu til kosninganna sem nú fara fram.

Á katalónska þinginu sitja 135 fulltrúar. Hvor fylking þarf því 68 sæti til að ná meirihluta. Stjórnmálaskýrendur segja að nái sambandssinnar öruggum meirihluta megi segja að krísunni muni hafa verið afstýrt. Nái sjálfstæðissinnar meirihluta er aftur á móti óljóst hvert framhaldið yrði.

Fallið hefur verið frá evrópskri handtökuskipan á hendur Carles Puigdemont, sem spænsk stjórnvöld settu úr embætti forsætisráðherra Katalóníu eftir sjálfstæðisyfirlýsinguna. Hann dvelur hins vegar í útlegð í Belgíu og á yfir höfði sér mögulega ákæru fyrir uppþot og að hvetja til uppreisnar. Hámarksrefsing fyrir sakargiftirnar eru 30 ára fangelsi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images