Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Time’s Up: Konur innan Hollywood stofna 13 milljón dala sjóð til stuðnings verkakonum

$
0
0

Meryl Streep, Natalie Portman, Emma Stone, Ashley Judd og Reese Witherspoon eru meðal þrjú hundruð kvenna sem starfa innan Hollywood og hófu nýja árið á að ýta úr vör sameiginlegu átaki til að berjast gegn kynferðislegri áreitni víðar en innan kvikmynda- og skemmtanaiðnaðarins. Átakið ber heitið Time’s Up, eða í grófri þýðingu Mál að linni.

Heilsíðuauglýsing Time's up í New York Times í upphafi ársins 2018.

Heilsíðuauglýsing Time’s up í New York Times í upphafi ársins 2018.

Tilkynnt var um stofnun átaksins með heilsíðuauglýsingu í New York Times á nýársdag, ásamt hinu spænskumælandi dagblaði La Opinion. Umfangsmesta framkvæmdin sem hópurinn ræðst í nú þegar er stofnun sjóðs til að greiða fyrir lögfræðiþjónustu og aðrar varnir fyrir konur í fagstéttum sem ekki njóta sömu tekna og sýnileika og leikarar. Sérstaklega eru nefndir hjúkrunarfræðingar, húsverðir, starfsfólk í landbúnaði, verksmiðjum, veitingastöðum og hótelum. Stofnfé sjóðsins er 13 milljónir dala, eða nokkuð á annan milljarð íslenskra króna.

Um leið tilkynnti hópurinn um baráttu fyrir löggjöf sem refsa myndi fyrirtækjum fyrir að líða viðvarandi áreitni, og vinna gegn því að málshöfðunum vegna slíks sé lokið með leynilegu samkomulagi, sem víða hefur tíðkast. Slíkar málalyktir leiki stóran þátt í þöggun þolenda. Barist verði fyrir kynjajafnrétti innan kvikmyndavera og meðal umboðsaðila.

Loks eru þær konur sem boðið er til Golden Globes verðlaunaafhendingarinnar framundan beðnar um að taka þátt í vitundarvakningu með því að klæðast svörtu. Um þá beiðni sagði Eva Longoria: „Árum saman höfum við selt þessi verðlaun sem konur, með kjólum okkar og litadýrð, fögrum andlitum og glamúr. Í þetta sinn getur iðnaðurinn ekki ætlast til að við stígum á stokk og snúum okkur í hring. Það er ekki inntak þessarar stundar.“

Í nóvember birtist opið bréf sem skrifað var fyrir hönd 700.000 kvenkyns starfsmanna í landbúnaði, þar sem þær sögðust styðja konur innan Hollywood í baráttunni gegn misnotkun. Meðlimir Time’s up sögðu að þetta bréf hafi verið meðal þess sem hvatti þær til að sýna konum í öðrum fagstéttum samstöðu í verki.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images