Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Lög um jafnlaunavottun taka gildi og vekja heimsathygli; Sanders segir: gerum eins og Ísland

$
0
0

Fjölmargir alþjóðlegir fjölmiðlar hafa síðustu daga birt fréttir um lög um jafnlaunavottun, sem tóku gildi á Íslandi nú um áramót. Öllum miðlum ber saman um að Ísland sé fyrst ríkja til að fylgja eftir lögum gegn launamismun kynja með eftirliti og viðurlögum þegar þeim er ekki fylgt.

Sósíalistinn Bernie Sanders lét meðal annars frá sér færslu á samfélagsmiðlum á þriðjudag, þar sem hann sagði bandarískt samfélag verða að fylgja fordæmi bræðra sinna og systra á Íslandi og krefjast jafnra launa fyrir sömu störf, „óháð kyni, uppruna, kynhneigð og þjóðerni.“

Í sumum erlendum fjölmiðlum verður vart við sömu ályktun, að hin nýju lög meini fyrirtækjum að mismuna launþegum eftir kyni, þjóðerni, uppruna og kynhneigð. Slík mismunun hefur lengi verið bönnuð á Íslandi eins og víðar, en jafnlaunastaðallinn nær þó ekki til allra þessara þátta heldur gegnir því afmarkaðra hlutverki að staðfesta og tryggja launajöfnuð milli karla og kvenna.

Staðallinn ÍST 85

Nýmælin felast breytingu á Lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla frá árinu 2008, sem innleiðir kröfu um að stærri fyrirtæki fylgi staðli til jafnlaunavottunar, og sæti eftirliti opinberra aðila um að staðlinum sé fylgt, að viðlögðum dagsektum. Staðlinum er ætlað að tryggja að launþegum sé ekki mismunað eftir kyni. Krafan tekur til allra fyrirtækja með 25 starfsmenn eða fleiri.

Staðallinn er í umsjá staðlaráðs og ber heitið ÍST 85. Hver sem vill kynna sér staðalinn getur nálgast hann hjá Staðlaráði fyrir rúmar 10.000 krónur. Samkvæmt lögunum skal vottun á fylgni fyrirtækis við staðalinn fara fram á þriggja ára fresti. Jafréttisstofa sér um eftirfylgni við úrbætur þegar þeirra gerist þörf og getur beitt dagsektum. Nánari útfærslu eftirlits og vottunar ákveður ráðherra með reglugerð.

Þverpólitísk samstaða

Í erlendum miðlum birtast víða ljósmyndir af Katrínu Jakobsdóttur með fréttum af gildistöku staðalsins. Það var þó ekki hin nýja ríkisstjórn VG og félaga sem stóð að lögunum, heldur stjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar. Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra í þeirri ríkisstjórn mælti fyrir lagafrumvarpinu á þingi í apríl síðastliðnum, fyrir hönd stjórnarþingmanna. Alls var málið tekið fyrir á níu fundum allsherjar- og menntamálanefndar og loks samþykkt 1. júní 2017.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images