Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Andri Snær frægur í Japan

$
0
0

Andri Snær Magnason birtir nokkrar myndir á Facebook-síðu sinni úr japanskri sjónvarpsútsendingu, þar sem hann sjálfur er til viðtals. Allt og sumt sem fylgir myndunum úr hlaði er yfirskriftin „Famous in Japan“. Kvennablaðið hafði samband við Andra til að hvá. Hvað varstu að gera í Japan?

Japanska leikkonan Hitomi Kuroki ræðir við Andra Snæ Magnason.

Japanska leikkonan Hitomi Kuroki ræðir við Andra Snæ Magnason.

Andri reynist hreint ekki hafa verið í Japan við þessar tökur, heldur fóru þær að öllu leyti fram heima hjá honum. Fimmtán manna tökulið bar að garði, segir hann, til að fjalla um Ísland.

Alls hafa fjórar bækur Andra komið út á japönsku, Tímakistan, LoveStar, Blái hnötturinn og Draumalandið. Í þetta sinn segist skáldið þó ekki hafa verið ytra til að kynna neina þeirra, heldur séu þetta myndbrot úr viðtali um íslenskar bókmenntir almennt, sem leikkonan og kvikmyndastjarnan Hitomi Kuroki hafi tekið við hann.

Japanska leikkonan Hitomi Kuroki ræðir við Andra Snæ Magnason.

Hitomi Kuroki ræðir við Andra Snæ.

Það er þó ekki allt og sumt, því Andra bregður líka fyrir á nýrri plötu japanska tónlistarmannsins Ryuichi Sakamoto. Frekar en spyrja hvað Andri hafi verið að gera í Japan virðist helst tilefni til að spyrja hvernig hann hafi yfirleitt tíma til að sinna íslenskum lesendum að auki. Það bíður lengra viðtals.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images