Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Bretland: Framsækinn menntamálaráðherra hverfur úr stjórn May

$
0
0

Justine Greening var menntamálaráðherra í ríkisstjórn Theresu May í Bretlandi þar til nú á mánudag, þegar hún sagði af sér.

Afsögn Greening barst beint í kjölfarið á uppstokkun í ríkisstjórninni, og er víða túlkuð svo að May hafi í reynd vikið Greening úr stjórninni. Að sögn The Guardian bauðst Greening staða atvinnu- og lífeyrismálaráðherra, sem hún hafnaði, á tveggja tíma löngum fundi með May á mánudag. Niðurstaða fundarins varð sú að Greening hyrfi á braut.

Segist hafa viljað vinna að félagslegum hreyfanleika

Um nokkra hríð hafði May og Greening greint á um þróun bóknáms á unglingastigi. Í tísti á mánudagskvöld sagðist Greening vera heiðruð af því að þjóna í ríkisstjórnum frá árinu 2010. Félagslegur hreyfanleiki væri hins vegar mikilvægari landinu en ráðherraferill hennar sjálfrar, og má skilja á henni að hún hafi ekki talið sér fært að vinna að auknum félagslegum hreyfanleika í bresku samfélagi með sama hætti í ráðuneyti atvinnumála og sem menntamálaráðherra.

May hafi þarmeð „látið undan strákunum“

Litið hefur verið á Greening sem nútímalegan og framsækinn fulltrúa innan breska Íhaldsflokksins. Í umfjöllun blaðsins er vitnað í þingmann flokksins sem óskar nafnleyndar en sagði að það væri hræðilegt mistök að missa Greening úr stjórninni. Þar með hafi May „látið undan strákunum og í reynd sparkað konu sem er fædd og alin upp í Rotherham og gekk í staðarskóla,“ andstætt þeim fjölmörgu í forystu flokksins sem gengu í einkaskóla efnafólks. Þá segir ónafngreindi þingmaðurinn að Greening sé „snjöll, meira en hæf, sigraði Verkamannaflokkinn í baráttu um sæti sitt — og það vill svo til að hún er í samkynja sambandi.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images