Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Pólexit? Hætta á að Pólland segi skilið við ESB, segir Donald Tusk

$
0
0

Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs ESB, varaði á miðvikudag við því að ríkisstjórn Póllands gæti haft í hyggju að segja skilið við Evrópusambandið. Tusk sagði traust á milli sambandsins og Póllands vera uppurið en enn ríkti innan ESB sterk von til landsins, um áframhaldandi aðild þess.

Aukin afskipti pólskra stjórnvalda af dómstólum

Deilur hafa um hríð staðið á milli Póllands og ESB um nokkurn fjölda mála, þar á meðal umdeildar breytingar á dómstólum í Póllandi. Fulltrúar Evrópusambandsins segja pólsk stjórnvöld vega að réttarríkinu með þrettán lögum sem sett hafa verið á síðustu tveimur árum, sem fela í sér aukið taumhald framkvæmdavaldsins á dómsvaldinu.

Veigamestu breytingarnar voru gerðar nú í desember sl., með lögum sem kveða á um að dómarar á lægri dómstigum eru skipaðir af löggjafanum beint en ekki af öðrum dómurum eins og háttur var til þessa. Þá var stjórnvöldum gert kleift að skipta um allt að 40% Hæstaréttardómara á næstu árum, með lækkun lífeyrisaldurs þeirra úr 70 í 65 ár. Forseti landsins ákveður, samkvæmt lögunum, hvaða dómurum er leyft að starfa áfram eftir 65 ára aldur, og hverjum ekki.

Grein 7 og „kjarnorkuúrræðið“

Í desember virkjuðu stofnanir Evrópusambandsins svonefnda grein 7 gegn Póllandi. Um er að ræða 7. grein Lissabon-sáttmálans, núgildandi stofnsáttmála ESB, sem færir sambandinu úrræði til að bregðast við mögulegum mannréttindabrotum innan aðildarríkis, sem og brotum gegn grunngildum sambandsins eins og þeim er lýst í 2. grein stofnsáttmálans. Er þetta í fyrsta sinn sem ákvæðinu er beitt.

Fyrstu skref í beitingu ákvæðisins fela ekki í sér verulegar þvinganir. Ef ekki nást sættir getur það aftur á móti leitt til þess sem nefnt er „kjarnorkuúrræðið“: að ríkið, í þessu tilfelli Pólland, missi atkvæðarétt sinn innan sambandsins.

„Réttarkerfi undir pólitískri stjórn meirihlutans“

Frans Timmermans, varaforseti Framkvæmdastjórnar ESB, sagði fulltrúum sambandsins vera þungt fyrir brjósti er þau gripu til greinar 7 gegn Póllandi. Staðreyndir málsins takmörkuðu hins vegar valkosti sambandsins: „Umbætur á dómstólum Póllands fela í sér að réttarkerfi landsins er nú undir pólitískri stjórn ríkjandi meirihluta. Án óháðra dómstóla vakna alvarlegar spurningar um raunverulega framkvæmd laga ESB.“

Forsætisráðherra Póllands er Mateusz Morawiecki, fyrir hönd þjóðernis- og íhaldsflokksins Lög og réttur (Prawo i Sprawiedliwość eða PiS), sem stofnaður var árið 2001. Hann tók við embættinu fyrir tæpum mánuði, þann 17. desember sl. Frekari breytingar voru gerðar á ráðherraskipan ríkisstjórnarinnar nú í vikunni. Almennt er litið svo á að umstokkunin feli í sér nokkra mildun á framsetningu, ekki síst til að liðka fyrir samskiptum á alþjóðavettvangi, en ekki efnislegar breytingar á stefnu stjórnarinnar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images