Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Mun 4 bls. minnisblað binda endi á Rússlandsævintýri bandarískra stjórnmála?

$
0
0

Í dag, föstudag, munu bandarískir fjölmiðlar fá aðgang að, og birta, minnisblað sem hefur verið miðpunktur pólitískrar umræðu þar í landi síðustu tvær vikur eða svo. Hermt er að minnisblaðið, memóið, sýni fram á hversu óvilhöll bandaríska alríkislögreglan, FBI, hafi verið í garð Donalds Trump sem forseta, og að aðferðir hennar við rannsókn meintra tengsla forsetans og fylgdarliðs hans við valdhafa í Rússlandi, séu ámælisverðar.

Minnisblaðið er alls fjórar síður, sem teknar voru saman af fulltrúadeildarþingmanni Repúblikanaflokksins, Devin Nunes, sem fer með formennsku í upplýsinganefnd þingsins (House Intelligence Committee). Aðrir þingfulltrúar hafa haft aðgang að því. Samkvæmt orðrómi sem þaðan hefur borist kemur fram í minnisblaðinu að FBI hafi beitt njósnaheimildum áætlunarinnar FISA til að rannsaka kosningaherferð Trumps árið 2016. Beiting heimildanna hafi falið í sér misbeitingu valdheimilda stofnunarinnar.

Á mánudag kaus upplýsinganefndin með því að minnisblaðið yrði gert opinbert. Þá hefur forsetinn sjálfur fimm daga frest til að staðfesta eða hafna þeirri ákvörðun. Á fimmtudag þótti ekkert benda til annars en að Trump myndi staðfesta ákvörðunina á föstudag.

Stuðningslið forsetans á samfélagsmiðlum hefur síðustu vikur þrýst á um birtingu minnisblaðsins undir myllumerkinu #ReleaseTheMemo og binda vonir við að þar með sjái fyrir enda rannsókna á tengslum Trump-liðsins við Rússa.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images