Vor í verkó, hreyfingin að baki Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formannsframbjóðanda í stjórnarkjöri Eflingar, hefur ýtt úr vör Facebook-síðu sem heitir einfaldlega Fólkið í Eflingu – þar sem meðlimir stéttarfélagsins segir í stuttu máli frá högum sínum.
Ísland eyja þar sem stefnulausir staldra við
Ungur pólskur karlmaður lýsir Reykjavík sem draugabæ, sérstaklega miðbænum, og segir að þar búi enginn vegna þess hve húsnæðið er dýrt, „allt undirlagt af AirBnB“. Því sé Ísland „eyja þar sem fólk staldrar við tímabundið þegar það veit ekki hvað það ætlar að gera næst í lífinu.“ Hann segist sjálfur vera einn af af þeim og hitti mest fólk sem er á leið í gegn.
„Þegar ég hafði sofið á vindsæng í þrjá mánuði þá ákvað ég að skuldbinda mig og vera með lengra plan fram í tímann. Ég keypti mér dýnu og skráði mig í meirapróf. Prófið kostar mig ein mánaðarlaun á ferðaskrifstofunni en kaupið mitt hækkar ef ég fer í ferðir þar sem ég er bæði bílstjóri og leiðsögumaður.“
Launahækkanir sem duga ekki fyrir klósettpappír
„Þegar ég var ung og falleg lærði ég verkfræði í Pólandi en núna er ég bara falleg láglaunakona á Íslandi.“ Þannig hefst frásögn Barböru, sem varð ekkja með tvö börn skömmu eftir að hún flutti til Íslands. Hún segist vera „sjálfstæð af því að það hefur aldrei verið neinn annar en ég og ég“. Hún hefur starfað við aðhlynningu á Landakoti í átján ár, hvorki orðið atvinnulaus né stuðst við opinberar bætur.
Þá lýsir Barbara árangri kjarabaráttu síðustu ára:
Ég fékk fimm þúsund krónur í launahækkun eftir fimm ára starf og aftur fimm þúsund eftir níu ár. Þetta eru reglur sem fulltrúar þjóðarinnar setja á Alþingi og þetta nægir ekki fyrir klósettpappír. Þegar ég klára vaktina á Landakoti þá keyri ég í Kópavoginn á sambýli sem er hin vinnan mín. Til þess að endar nái saman þarf ég tvær vinnur og borga háa skatta af því einhver verður að borga svörtu Lexus-jeppana og kampavínið fyrir alþingismennina.
Hún segir lúxus að fara til tannlæknis á Íslandi, sem ekki allir geti leyft sér, enda fari hún heldur til tannlæknis í Póllandi. Þá mun reynsla hennar af íslenskum húsnæðismarkaði víst koma mörgum kunnuglega fyrir sjónir.



