Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Flogist á: Þingmenn Suðurkjördæmis vilja millilandaflug til Hornafjarðar – Miðflokkurinn til Skagafjarðar

$
0
0

Á miðvikudag flutti Unnur Brá Konráðsdóttir þingsályktunartillögu um að skoðað verði hvort nýta megin Hornafjarðarflugvöll til millilandaflugs, „til að treysta enn frekar tvinnulíf í Hornafirði og nágrenni“. Þá er sagt að með tilhöguninni megi auka öryggi í flugi yfir landið og minnka álag á Keflavíkurflugvelli.

Í greinargerð með tillögunni kemur fram að hún hafi fyrst verið flutt á 141. þingi, sem stóð veturinn 2012–2013. Tillagan hefur verið endurflutt fjórum sinnum síðan og er þetta því alls í sjötta sinn sem hún kemur fram.

Að baki tillögunni virðist hafa myndast þverpólitísk samstaða meðal þingmanna Suðurkjördæmis: Smári McCarthy pírati, Silja Dögg Gunnarsdóttir úr Framsókn, Ari Trausti VG-liði, Páll Magnússon Sjálfstæðisflokks og Oddný Harðardóttir Samfylkingar voru á meðal skráðra flutningsmanna hennar.

Í dag, fimmtudag, munu þingmenn Miðflokksins aftur á móti flytja tillögu að þingsályktun um að flugvöllurinn á Sauðárkróki, í Skagafirði, verði gerður að varaflugvelli fyrir Keflavíkurvöll og Reykjavíkurvöll, auk Akureyrarflugvallar, og geti þannig treyst í sessi bæði innanlandsflug og millilandaflug til Norðurlands. Í greinargerð með tillögunni er sagt „augljóst að slíkur flugvöllur mun þjóna Akureyri vel sem varaflugvöllur og tryggja og treysta þá mikilvægu starfsemi sem þar er rekin í sambandi við ferðaþjónustu og flug almennt“.


Fréttin var uppfærð eftir birtingu. Á ljósmyndinni sem fylgir fréttinni má sjá núverandi flugstöðvarbyggingu Hornafjarðarflugvallar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images