Í viðtali við Morgunblaðið gerir Baldvin M. Hermannsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs flugfélagsins Air Atlanta lítið úr því að félagið eigi ríkra hagsmuna að gæta í vopnaflutningum til Sádi-Arabíu: félagið flytji „fleiri þúsundir tonna“ í hverjum mánuði og fái „alveg það sama greitt fyrir flutning hergagna og til dæmis flutning bílavarahluta“.
Raunin virðist þó vera sú að um þessar mundir sé sádi-arabíska flugfélagið Saudia, einnig nefnt Saudi Arabian Airlines, langstærsti viðskiptavinur Air Atlanta.
Langflestar vélar Air Atlanta að störfum fyrir Saudia Cargo
Samkvæmt gögnum vefsins Planespotters.net eru nú í febrúar 2018 alls 14 flugvélar í eigu Air Atlanta, allar af gerðinni Boeing 747-400. Af þessum 14 flugvélum eru 13 í virkri notkun. Af þeim er 10 vélum um þessar mundir (febrúar 2018) aðeins flogið fyrir sádi-arabíska flugfélagið Saudia, öðru nafni Saudi Arabian Airlines.
Af þeim þremur þotum sem eftir standa er aðeins vitað um fasta leigu á einni, sem er í notkun kenýska félagsins Astral Aviation. Saudia virðist með öðrum orðum langstærsti viðskiptavinur Air Atlanta.

Boeing 747 þota Air Atlanta, að störfum undir merkjum Saudia Cargo.
Vélar Air Atlanta merktar Saudia í bak og fyrir
Air Atlanta sérhæfir sig í svokallaðri CMI þjónustu (crew, maintenance and insurance) þar sem flugvél er leigð ásamt áhöfn og tryggingum til annars aðila, til dæmis stærra flugfélags. Þotur félagsins eru um þessar mundir prýddar með merki viðskiptavinarins, Saudia Cargo, í bak og fyrir, enda eru slíkar merkingar hluti af auglýstri CMI-þjónustu Air Atlanta.
Hvorki Air Atlanta né Samgöngustofa hafa verið fús að veita fjölmiðlum upplýsingar um hergagnaflutninga Air Atlanta frá Austur-Evrópu til Sádi-Arabíu. Því er ekki vitað með vissu hversu umfangsmikil viðskiptin eru. Þeir vopnaflutningar félagsins sem fengist hafa staðfestir eftir öðrum leiðum innihalda meðal annars 170.000 jarðsprengjur sem félagið ferjaði frá Slóvakíu til Sádi-Arabíu. Allir hergagnaflutningar félagsins sem vitað er um enn sem komið er fara fram undir merkjum Saudia.
„Ómælt tjón“ gæti orðið af miðlun upplýsinga
Verið getur, og virðist raunar sennilegt, að vopnaflutningar séu lítill hluti af farmflutningum Air Atlanta í tonnum talið. Eftir sem áður virðist sá viðskiptavinur félagsins sem óskar eftir vopnaflutningunum vera langstærsti viðskiptavinur þess um þessar mundir. Því geta ríkari viðskiptahagsmunir verið í húfi en sem nemur magni farmsins í tonnum talið.
Viðskiptahagsmunirnir eru í það minnsta álitnir nógu verulegir til að bæði flugfélagið og Samgöngustofa neita fjölmiðlum um upplýsingar vegna þeirra. Raunar svaraði lögfræðingur fyrirspurnum um málið með því að veiting upplýsinga gæti valdið félaginu „ómældu tjóni“ og sett samninga „sem hafa verið við lýði um árabil“ í uppnám „með ófyrirséðum afleiðingum“.

Höfuðstöðvar Air Atlanta við Hlíðasmára 3 í Kópavogi. Þar er einnig til húsa kaffihúsið Café Atlanta.
Stóra flugfélagið í litla húsinu
Fyrr í dag, fimmtudag, leiðrétti Kvennablaðið aðra misfærslu Baldvins í viðtalinu við Morgunblaðið, þá að skráningu „endanlegs viðtakanda“ við hergagnaflutninga væri ætlað að koma í veg fyrir áframsölu.
Það var Kveikur, fréttaskýringaþáttur RÚV, sem fyrst vakti athygli á þeirri staðreynd að Air Atlanta hefur síðustu ár annast flutning hergagna frá Austur-Evrópulöndum til Sádi-Arabíu, þaðan sem talið er að þau berist meðal annars til stríðandi fylkinga í Sýrlandi og Jemen.
Samfelldur rekstur hefur farið fram undir nafni Air Atlanta frá árinu 1986. Meðal viðskiptavina þess í gegnum tíðina eru flutningafélög á við Lufthansa Cargo, TNT, Cargolux, DHL og flugfélög á við Air France.
Á milli 80 og 90 skráð félög í heiminum starfa á sama sviði og Air Atlanta, það er við leiguflug. Félagið segist státa af einum stærsta flota heims af B747-400 vélum. Hver vél betur borið um 130 tonn af farmi.
Aðsetur félagsins er við Hlíðasmára 3 í Kópavogi.



