Aðalsteinn Árni Baldursson formaður verkalýðsfélagsins Framsýnar á Húsavík skrifar:
Ég skal fúslega viðurkenna að mér er stórlega misboðið að hlusta á auglýsingar í fjölmiðlum frá A-lista stjórnar og trúnaðarráðs Eflingar. Í stað þess að leggja fram tillögur/hugmyndir varðandi þeirra sýn á verkalýðsbaráttuna hefja þau leðjuslag og kenna framboð B-listans við ákveðinn stjórnmálaflokk.
Það er ekki laust við að aumingjahrollur færist yfir mann. Hugsanlega eru þau ráðþrota og hugmyndalaus. Mér er fullkunnugt um það hvernig menn hafa unnið á þeim bænum. Það er efni í langa færslu.
Hafa þau ekkert fylgst með því hvernig menn hafa unnið innan verkalýðshreyfingarinnar sem þau horfa upp til. Ætla menn að halda því fram að það hafi ekki verið tengsl milli Gylfa A, Sigurðar B og Ólafíu R, þegar þau stýrðu ASÍ sem forsetar við Samfylginguna.
Vita menn innan framboðs A-lista Eflingar að unnið hefur verið að því að koma í veg fyrir að ákveðnar skoðanir verkalýðsforingja heyrist í fjölmiðlum, það er skoðanir verkalýðsforingja sem vilja sjá harðari og sanngjarnari baráttu fyrir kjörum verkafólks. Verkalýðsforingjar sem hafa lagt upp úr því að hlusta eftir skoðunum félagsmanna og alþýðunar í landinu sem býr við lökust kjörin.
Fór það algjörlega fram hjá þeim þegar þessir sömu aðilar börðust fyrir því að kjarasamningur sem var undirritaður fyrir nokkrum árum yrði felldur í óþökk elítunar.
Vita þau einnig að upplýsingafulltrúi ASÍ tók grein eftir Sighvat Björgvinsson krata sem talaði niður til þeirra verkalýðsforyngja sem stóðu í lappirnar og hvöttu félagsmenn til að fella samninginn. (Smá innskot, verkafólk hlustaði á órólegu deildina og felldi samninginn, þá var ekki bros á andlitum forystu ASÍ og Eflingar) Grein Sighvats var birt á Facebook síðu ASÍ. Það er gegn skoðunum mínum og minna félaga innan ASÍ sem staðið hafa í lappirnar í gegnum tíðina gegn þessu liði sem gleðst ekki yfir því að fólk bjóði sig fram til forystustarfa í verkalýðshreyfingunni.
Nei, þeir líta á það sem ógnun gegn sitjandi valdhöfum.
Ég tel eðlilegt að A-listi stjórnar og trúnaðaráðs Eflingar biðji Sólveigu formannsefni og hennar frambjóðendur afsökunar á svona málflutningi líkt og upplýsingafulltrúi ASÍ gerði þegar hann bað mig afsökunar að hafa birt grein Sighvats krata á Facebook síðu ASÍ. Höfum í huga að Sighvatur greiðir ekki skatta til ASÍ eða verkalýðshreyfingarinnar, það gerir hins vegar Framsýn, það er nokkrar milljónir á ári.
Ég skora á Eflingar félaga að nota kosningaréttinn og kjósa um nýja forystu í félaginu. Ég legg það ekki í vana minn að skipa fólki fyrir, ég treysti fólki til að kjósa rétt í stjórnarkjöri Eflingar. Við þurfum nýtt blóð sem er tilbúið að takast á við krefjandi baráttu sem
er framundan í íslenski verkalýðsbaráttu.
Góðar stundir.
Lesið endilega viðtal við frambjóðendurna Sólveigu Önnu og Ingvar Vigur hér:






