Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Frelsi Lindu Vilhjálmsdóttur verðlaunað í Póllandi

$
0
0
Wolność eftir Lindu Vilhjálmsdóttur.

Wolność eftir Lindu Vilhjálmsdóttur.

Linda Vilhjálmsdóttir hlaut nú á sunnudag verðlaun bókmenntahátíðarinnar „European Poets of Freedom“ eða Evrópsk frelsisskáld, sem stóð yfir um helgina í Gdansk í Póllandi. Verðlaunin voru veitt Lindu fyrir ljóðabókina Frelsi.

Frelsi er sjötta ljóðabók Lindu og var gefin út af Máli og menningu árið 2015. Meðal annarra tilnefndra skálda voru Selim Babullaoglu frá Aserbaísjan, Alice Oswald frá Bretlandi, Erkka Filander frá Finnlandi og Tatev Chakhian frá Armeníu.

Í umsögn um verk Lindu á vefsíðu hátíðarinnar segir að með augastað á yfirvofandi umhverfisvá skrásetji Linda „eyðileggingu garðsins þar sem við erum upprunnin, og tekst á við þann málflutning og þær trúarsetningar sem hafa í sögunnar rás flýtt fyrir eyðileggingunni. Hrífandi er harðneskja hinna köldu erinda íslenska skáldsins, sem eru fær um að bera stjórnmál, vistfræði og trúarbrögð án þess að glata aðdráttarafli einfaldrar, lýrískrar samsetningar.“

Linda með verðlaunagripinn, ásamt Jacek Godek, þýðanda verksins.

Linda með verðlaunagripinn, ásamt Jacek Godek, þýðanda verksins.

Jacek Godek þýddi Frelsi á pólsku, undir titlinum Wolność. Hann segir að verkið sé „pólitísk ritsmíð. Feminísk. Raunsæ. Vinstri. Að því viðbættu að hún er trúarleg. Og – öðru fremur – altæk. Því hvar er frelsið ekki misnotað? Hvar er fólk ekki flokkað eins og sorp? Í hvaða hluta af norðurhveli jarðar ríkir ekki frjálslynd neysluhyggja? Við erum öll þegnar hinnar hnattrænu löggjafar efnishyggjunnar, við viljum öll frekar eiga en vera.“

Þetta er í fimmta sinn sem verðlaunin eru veitt. Verðlaunaféð nemur 100.000 zloty, eða tæpum 3 milljónum króna, til skáldsins og 20.000 zloty til þýðandans.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images