Í nýútkominni ársskýrslu Náttúrufræðistofnunar 2017 kemur fram að elsta álft Evrópu, svo vitað sé, hafi fundist á Íslandi í maí á síðasta ári. Hún var þá dauð og er sögð hafa drepist síðla vetrar. Álftin var merkt sem ungi í september 1986 og var því orðin að minnsta kosti 30 og hálfs árs. „Eldri álft er ekki að finna á lista EURING yfir evrópsk aldursmet“ segir í skýrslunni.
Ljósmynd af álftum í Reykjavík, cc: PapaPiper





