Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Almenna leigufélagið —Gamma— hækkar leigu um 50–70% á tveimur árum

$
0
0

Almenna leigufélagið, sem er í eigu sjóða Gamma, býður leigjendum íbúða í sinni eigu að endurnýja 12 mánaða leigusamninga til eins árs enn gegn tugþúsunda króna hækkun á mánaðarleigu. Hækkanirnar nema alls 50% til 70% á tveimur árum. Þetta kemur fram í lestri Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR, á hluta af þeim gögnum sem tekið hafa að berast stéttarfélaginu, sem auglýsti á dögunum eftir upplýsingum frá fólki um leiguhækkanir.

Ragnar segir mörg dæmi þess að einstaklingar og tekjulágar fjölskyldur missi gegnum slíkar leiguhækkanir „það litla sem eftir er af ráðstöfunartekjum til að brauðfæða sig og sína“. margir séu skiljanlega í áfalli yfir þeim og standi enda ráðþrota frammi fyrir kröfum fyrirtækisins. Eini valkosturinn við að fallast á hækkunina sé að enda á götunni.

Ragnar segir að einnig séu dæmi um að fyrirtækið heimti 120.000 króna flutningsgjald frá þeim sem flytja milli íbúða í eigu þess, oftast sé krafið hærri trygginga í nýrri samningum, og iðulega séu rukkaðar 95.000 krónur fyrir málningavinnu, eða leigjanda gert að skila íbúð af sér nýmálaðri, ef leigusamningi er sagt upp.

Í Facebook-færslu þar sem Ragnar rekur þessar upplýsingar vitnar hann einnig í vefsíðu Almenna leigufélagsins, þar sem fyrirtækið segist hafa markað sér „samfélagsstefnu sem fjallar um réttindi leigjenda, umhverfið, jafnrétti og mannauð.“

„Þvílík og önnur eins öfugmæli!“ segir formaður VR.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images