Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Brynjar Sigurðarson hlýtur veglegustu hönnunarverðlaun heims

$
0
0
Brynjar Sigurðarson

Brynjar Sigurðarson.

Íslenski hönnuðurinn og listamaðurinn Brynjar Sigurðarson er handhafi verðlauna Torstens og Wönju Söderberg sem veitt eru í Svíþjóð ár hvert. Verðlaunaféð nemur einni milljón sænskra króna, sem gerir verðlaunin að þeim stærstu í heimi á sviði hönnunar, að sögn Dagens Nyheter.

Í áliti dómnefndar segir að verk Brynjars eigi sterkar rætur í tveimur þáttum íslensks menningararfs: frásagnarhefðarinnar og sjávarútvegs. Hann spinni hið liðna saman við samtímann, þar sem alþjóðleg áhrif og nýir möguleikar mæti honum opnum örmum. Brynjar hafi átt samstarf við fólk á ólíkum sviðum, sjómenn, kvikmyndagerðarfólk, rithöfunda, tónlistarfólk, fornleifafræðinga og handverksmenn, og þetta samstarf sé lykilatriði í öllu hans starfi. Þeirri nýlund og staðfestu sem gegnsýri allt hans hönnunarstarf megi lýsa sem „norrænu taki“ á tilhneigingum í evrópskri hönnun.

Í viðtali við Dagens Nyheter segir Brynjar að verðlaunin séu „ótrúlega þýðingarmikil viðurkenning“ fyrir sig.

Brynjar er fæddur í Reykjavík árið 1986. Hann býr í Suður-Frakklandi, og rekur íslenskt-þýskt hönnunarstúdíó í samstarfi við Veroniku Sedlmair.

Verðlaun Torstens og Wönju Söderberg hafa verið veitt árlega frá árinu 1994 fyrir skapandi nýlund og framúrskarandi árangur í listum, handverki og hönnun.


Ljósmyndin sem fylgir fréttinni sýnir kerti sem Brynjar hannaði fyrir spænska vörumerkið PCM, undir heitinu The Glacier Project, eða Jöklaverkefnið. Kertunum, sem eru í líki ísjaka, er ætlað að fela í sér áminningu um hnatthlýnun. Fleiri myndir af verkum Brynjars og Sedlmair má finna í umfjöllun tímaritsins Metropolis frá árinu 2015.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images