Á mánudag birti fréttavefur RÚV örlitla frétt frá Lögreglunni á Suðurnesjum, undir fyrirsögninni „Ferðamaður ætlaði að gista í torfkofa“. Segir þar af erlendum ferðamanni sem hafi á dögunum „hreiðrað um sig“ í torfkofa við rústir gammallar byggðar í Hópsnesi við Grindavík. Þar hafi hann komið fyrir svefnpoka og bakpoka. Eftir þrjá mánuði á landinu hefði hann ekki efni á öðrum gististað. Lögregla hafi bent honum á að „hann gæti ekki hafst við í kofanum“ og „þyrfti að finna sér annan samastað“. Þá hafi lögregla í tilkynningu sagst myndu „fylgjast með því að maðurinn fari að fyrirmælum og yfirgefi torfkofann“.
Kvennablaðið sendi Lögreglunni á Suðurnesjum tölvupóst sama dag til að spyrjast fyrir um við hvaða lagaheimild hefði verið stuðst í þessari aðgerð, það er hvaða lög meinuðu fólki að leggjast til hvílu í torfkofa eða öðrum eyðibýlum, með eða án bakpoka og svefnpoka.
„Hvað segistu vilja, einhverja lagaheimild?“
Þegar tölvupóstinum reyndist ekki hafa verið svarað, nú framan af þriðjudegi, hringdi blaðamaður í Lögregluna á Suðurnesjum til að fylgja spurningunni eftir símleiðis. „Hvað segistu vilja, einhverja lagaheimild?“ hváði starfsmaður lögreglunnar, en sagðist myndu gefa símtalið áfram á lögfræðideild. Þar var ekki svarað. Tvívegis var blaðamanni þá gefið samband við „Hringbraut“ sem sennilega vísar til lögreglustöðvarinnar við Hringbraut í Keflavík, og slitnaði símtalið í bæði skiptin. Loks virðist lögreglan á Suðurnesjum, nú undir hádegi, ekki lengur svara í símann.
Því er enn óljóst hvort lög meina fólki, erlendu sem innlendu, að hvíla sig á víðavangi, í torfkofum eða í öðrum eyðibýlum.
Uppfært: Eftir birtingu hafði lögreglustjórinn samband
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum skrifaði Kvennablaðinu síðdegis á miðvikudag og segir lögreglu ekki hafa meinað ferðamanni að gista í torfkofa heldur boðið honum aðstoð.
Ljósmynd, cc: Alexander Hahn.



