Umhverfisráðuneytið hefur kynnt drög að nýrri byggingareglugerð, þar sem kveðið verður á um að við nýbyggingar með bílastæðum verði gert ráð fyrir tengibúnaði til hleðslu rafbíla „við hvert bílastæði“.
Er hér um veigamikið skref að ræða til framkvæmdar á þeim orkuskiptum í samgöngum sem samið var um í stjórnarsáttmála, en þar er kveðið á um uppbyggingu á innviðum fyrir rafbíla.
Hafsteinn Pálsson, verkfræðingur hjá Umverfisráðuneytinu, segir aðspurður að krafa um aðstöðu til hleðslu á rafbílum sé ný í íslensku lagaumhverfi. Ákvæðin sem um ræðir eru tilkomin að innlendu frumkvæði, segir hann, og ekki til uppfyllingar á Evrópureglugerð. Aðspurður hvort svipaðar kröfur hafi verið bundnar í lög eða reglugerð í nágrannaríkjum Íslands eða annars staðar sagðist hann ekki geta fullyrt um það að svo stöddu.
Kostnaðarmat hefur ekki farið fram á reglugerðinni. Það verður að sögn ráðuneytisins gert þegar umsagnarferli lýkur og reglugerðin er tilbúin í endanlegri mynd.
Opið er fyrir innsendingu umsagna um frumvarpið til 23. maí nk, og verða þær birtar á Samráðsgátt hins opinbera jafnóðum og þær berast.



