Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ísland sniðgangi Eurovision í Jerúsalem —þúsundir undirskrifta safnast

$
0
0

Laugardagskvöldið 12. maí sigraði ísraelska framlagið Toy, í flutningi söngkonunnar Nettu, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision. Mánudaginn 14. maí drap ísraelski herinn yfir 50 manns úr hópi mótmælenda á Gaza-ströndinni. Nú undir hádegi þriðjudaginn 15. maí hafa yfir 5.000 undirskriftir safnast við áskorun til RÚV um að hafna þátttöku í Eurovision á næsta ári, sem vænta má að haldin verði í Ísrael. Segir í texta áskorunarinnar:

„Í ljósi mannréttindabrota Ísraelsríkis gagnvart palestínsku þjóðinni er ekki siðferðilega verjandi að taka þátt í glanskeppni eins og Eurovision í skugga þess ofbeldis sem Ísrael beitir nágranna sína. Ísraelsríki hefur á undanförnum mánuðum myrt tugi einstaklinga fyrir það eitt að mótmæla ástandinu.“

Eurovision áskorun

Af síðu áskorunarinnar.

Deilt um sniðgöngu

Mikið hefur borið á umræðu um málið á samfélagsmiðlum. Á mánudag birti Kvennablaðið grein Guðlaugar Elísabetar Ólafsdóttur leikkonu. Hún segir ljóst að þegar söngkonan kallaði, í fagnaðarlátunum eftir sigurinn: „Á næsta ári í Jerúsalem!“ hafi það ekki verið „klaufaskapur eða „óvart“. Framleiðsluteymið er búið að undirbúa þetta jafn vel og fyrstu tunglgöngusetninguna.“ Útspilið hafi verið til að „ögra og valda reiði og óróa“.

Á þriðjudag greindum við frá grein Eiríks Arnar Norðdahl, rithöfundar, á Starafugli, þar sem hann segir ójafnaðarstefnu birtast í því að ísraelskir listamenn séu gerðir ábyrgir fyrir mannréttindabrotum ísraelskra stjórnvalda umfram það sem tíðkast með listafólk frá öðrum löndum, til dæmis Bandaríkjunum. „Maður vanvirðir ekki fórnarlömb bandaríkjahers með því að horfa á Saturday Night Live. Það virkar bara ekki þannig,“ skrifar Eiríkur.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images