BBC News flutti á fimmtudag nokkuð ítarlega frétt af þeirri kröfu sem Eva Hauksdóttir og Hilmar Bjarnason, foreldrar Hauks Hilmarssonar, gera til íslenskra og breskra stjórnvalda, í slagtogi við Dirk Campbell, föður Önnu Campbell sem líkt og Haukur er talin hafa fallið í Afrin í Sýrlandi fyrr í vor.
Þá tók fréttamaður BBC, Victoria Derbyshire, viðtal við Evu Hauksdóttur og Dirk Campbell sem birtist í fréttaskýringaþætti hennar sama dag.
Lík Hauks og Önnu hafa ekki komið í leitirnar. Engir sjónarvottar hafa fundist að andláti Hauks né aðrar sannanir. Fjölskyldur, ástvinir og aðrir aðstandendur standa þannig enn milli vonar og ótta. Dag frá degi virðist ósennilegra að Haukur sé á lífi, en án staðfestingar er, eins og Eva nefnir í viðtalinu að ofan, ekki heldur hægt að syrgja.
Kvennablaðið greindi á fimmtudag frá opnu bréfi foreldranna til íslenskra og breskra stjórnvalda, þar sem þau krefjast þess að lagður verði þrýstingur á Tyrkland að leita að líkamsleifum fallinna í Afrin, í samræmi við alþjóðalög.
Anna Campbell er sögð hafa látist í sprengjuárásum tyrkneska hersins þann 15 mars. Haukur er talinn hafa fallið í febrúar, en margt er þó enn óljóst um adrif hans.
Fjölskyldur Önnu og Hauks vísa til 15. greinar Genfarsamningsins frá 1949, um meðferð fallinna í stríðsátökum, en þar eru stríðandi aðilar krafðir um að beita öllum mögulegum úrræðum til að finna lík á vígvelli og verja þau fyrir gripadeildum og illri meðferð. Þetta hafa tyrknesk yfirvöld bersýnilega ekki gert í Afrin, þar sem þau fara með völd eftir innrásina í febrúar og mars. Þá hafa tyrknesk stjórnvöld ekki leyft Rauða krossinum að leita á svæðinu.
„Þau eru étin af hundum og villidýrum“
Fyrr í þessari viku birtust ljósmyndir sem sagðar eru vera af líkum fallins bardagafólks í Afrin, sem liggja þar á víðavangi. Foreldrar Hauks og Önnu segjast óttast að líkamsleifar barna þeirra sæti nú þeirri meðferð. Dirk Campbell segir í viðtalinu við BBC að líkin hafi „ekki verið sótt, ekki verið komið í fjöldagröf, og sannarlega ekki verið færð í líkhús. Þau eru étin af hundum og villidýrum.“
Eva leggur áherslu á það í viðtalinu að stjórnvöld heimalanda þeirra, það er Íslands og Bretlands, spyrji tyrknesk stjórnvöld beint:
„Hafið þið hreinsað svæðið? Liggja þar lík á víðavangi? Og ef það er tilfellið, hvenær ætlið þið að gera eitthvað í því?“




