Það sem brennur mér efst á huga fyrir komandi kosningar eru samgöngumál, umhverfismál og málefni barna og ungs fólks. Að mínu mati ætti stefna borgarinnar að miða að því að fækka einkabílum, auka samnýtingu þeirra og bæta almenningssamgöngur. Sveitarfélögin eiga að taka meiri þátt í rekstri Strætó og niðurgreiða þjónustu. Strætó innanbæjar á að vera ókeypis fyrir alla, eins og á Akureyri. Í hið allra minnsta ætti að vera frítt í stræto fyrir börn undir 18 ára, nema í framhaldsskólum og háskólum, öryrkja og aldraða. Borgin ætti líka að bjóða upp á ódýr (jafnvel ókeypis) hjól og rafhjól til skammtímaleigu frá apríl fram í september ár hvert (og lengur ef færð leyfir).
Götur þarf margar hverjar að laga og gæta þarf að forgangsröðun vegamála og hindra það sem virðist handahófskenndar framkvæmdir – framkvæmdir í vegamálum borgarinnar einkennast oft um of á skammtímalausnum fremur en framsýni. Þar get ég nefnt til dæmi um framkvæmdir og lokanir á Rauðarársstíg, þar sem hringtorgi var komið fyrir. Fáeinum mánuðum síðar var svo hringtorginu og malbikinu skóflað burt til að gera við lagnir undir götunni og að því loknu hringtorgið endurgert. Þarna hefði mátt byrja á lagnaviðgerðunum og leggja hringtorgið síðar meir, og þar með forðast tvíverknað.
Það ætti að vera markmið okkar að vernda borgina okkar og huga vel að umhverfi hennar. Til dæmis mætti betur huga að gömlum húsum og svæðum þar sem fornminjar hafa fundist. Borgina þarf að hreinsa oftar, sem skipulagðri götusópun, ruslatínslu og öðrum leiðum. Almennings ruslatunnur þurfa að vera á öllum helstu svæðum sem umferð manna er um. Í miðborginni og á fjölförnustu svæðunum ætti að setja endurvinnslutunnur fyrir pappa og plast, við hlið almenns sorps og stuðla þannig að aukinni endurvinnslu. Þá vildi ég líka gjarnan sjá matvöruverslanir með flöskutalningu – þar sem nýta mætti skilagjald fyrir flöskur og dósir beint í matvöruinnkaup, eins og víða tíðkast á Norðurlöndum.
Það mætti gjarnan fjölga grænum svæðum borgarinnar og bæta við torgum, svipað og Klambratún er nema e.t.v. smærri í sniðum. Margir leikvellir borgarinnar eru líka úr sér gengnir og mikið þarf að laga. Sums staðar skapa leiktæki hreinlega hættu (t.d. við leikvöllin á Njálsgötu). Þetta er svo gott sem eina ókeypis skemmtun barna í borginni og það má kappkosta að því að allir leikvellir séu öruggir, bjóði upp á fjölbreytt leiktæki og séu aðlaðandi. Það er enginn leikvöllur í borginni sem er á pari við þá sem algengir eru á Norðurlöndum. Þá vantar líka afgirt leiksvæði fyrir yngstu börnin og jafnvel innanhús leikvelli, sem einnig þekkjast á Norðurlöndum og víðar. Borgin á að bjóða öllum börnum 10 ára og yngri á ókeypis leikjanámskeið yfir sumartímann. Það á ekki að líðast að einungis þeir vel stæðir foreldrar geti boðið börnum sínum upp á frístundir, námskeið og/eða sumarbúðir. Að sama skapi ætti að vera frítt í sund fyrir börn undir 18 ára, námsmenn, aldraða og öryrkja.
Losa verður um þau höft sem skapast hafa með hverfisskiptingu skólanna (bæði grunn- og framhaldsskóla) og ganga verður úr skugga um að allir skólar borgarinnar standi jöfnum fæti ef þeir á annað borð fylgja sömu námskránni. Grunnskólar ættu allir að vera jafnir að gæðum og búseta á ekki að ákvarða möguleika manna á góðu námi. Dæmi: Viðkomandi býr í Breiðholti en vill fara í MH eða MR en getur ekki/fær ekki forgang vegna hverfisskiptingar. Þá ættu öll námsgögn og heitur matur í hádeginu á að vera ókeypis fyrir börn í grunnskólum, enda námsgögn og staðgóð næring eitthvað sem öll börn þurfa á að halda og aðgengi þeirra að næringu og námsgögnum á ekki að vera bundið efnahag fjölskyldunnar.
Þá þarf að huga að barnaverndarmálum, auka samskipti milli barnavernda einstakra sveitafélaga og auka eftirlit og eftirfylgni. Barnavernd borgarinnar á að starfa með hagsmuni barnanna að leiðarljósi – en ekki hagsmuni forelsra eða ríkisstofnanna. Úrræði fyrir börn og unglinga með andleg veikindi og/eða fíknivanda þurfa að vera fjölbreytt og einstaklingsmiðuð. Þá mætti sérlega auka úrræðum fyrir börn með fjölþættan vanda.
Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík er í 7. sæti á framboðslista Alþýðufylkingarinnar í borgarstjórnarkosningunum 26. maí 2018



