Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Skólinn er lykill að framtíðinni

$
0
0

Þorvaldur Þorvaldsson skrifar:

Þorvaldur Þorvaldsson.

Þróun samfélagsins næstu áratugina ræðst að miklu leyti af þróun skólamála. Öll skólastig standa frammi fyrir áskorunum sem ekki er séð fyrir endann á. Verða skólarnir lyftistöng fyrir fjölbreytta, almenna menntun, jöfnuð, aukin lífsgæði og samstöðu í samfélaginu? Eða verða menntun og prófgráður að forréttindum þeirra ríku, andspænis uppgjöf í almenna skólakerfinu?

Skortur á menntuðum kennurum á sér nokkrar orsakir sem verður að sigrast á mjög fljótt, svo ekki verði varanlegur skaði. Annars vegar hefur aðsókn í kennaranám hrunið undanfarin ár, og hins vegar hefur hátt í helmingur menntaðra kennara valið að vinna önnur störf. Það stafar m.a. af því að laun kennara hafa dregist aftur úr miðað við auknar menntunarkröfur. Þá hafa aukin streita og aðrar afleiðingar kreppunnar haft mikil áhrif á skólastarfið. Auknum fjölda útlendra barna í skólunum hefur ekki verið mætt með auknum framlögum til móðurmálskennslu og annarra nauðsynlegra aðgerða.

Þegar lög voru sett á verkfall kennara 2004 með velþóknun samninganefndar sveitarfélaganna, myndaðist djúpstæð tortryggni hjá kennurum í garð sveitarstjórna. Hún hefur haldist við þar sem sveitarstjórnirnar hafa ekki viljað mæta kröfum kennara, heldur skýlt sér á bak við samninganefndir sem fylgja Samtökum atvinnulífsins. Nú er svo komið að sjúkrasjóðir Kennarasambandsins eru að tæmast vegna þess að fjöldi kennara brennur út í starfi og er nú fjölmennasti hópurinn í starfsendurhæfingu hjá Virk.

Viðhorfið til skólanna þarf að breytast. Þeir eiga ekki að vera stöðluð framleiðsla embættismanna með staðlaða kunnáttu eins og fyrir hundrað árum, heldur skapandi vettvangur fyrir fjölþætta þekkingar- og kunnáttuleit með starfi og frjálsum leik. Auka þarf virðingu fyrir verklegum greinum, enda er skortur á verkkunnáttu vaxandi samfélagsvandi. Stórefla þarf stuðning við nemendur með erlent móðurmál, bæði með stuðningi í þeirra móðurmáli og í íslensku. Skólinn verður að geta mætt hverjum nemanda þar sem hann er staddur, virkjað hans sterku hliðar, stutt hann til alhliða þroska.

Líta þarf á menntun sem lífsgæði einstaklinga og samfélags fremur en markaðsvöru. Skólinn á að ýta undir samvinnu fremur en samkeppni. Bætt kjör og aukin virðing fyrir störfum kennara geta fengið fleiri til að snúa aftur til kennslu og gert námið aðlaðandi. Auðvitað kostar þetta nokkra milljarða á ári. En hitt er miklu dýrara, að láta skólunum blæða út og kennara kulna í starfi í stórum stíl. Menntun á að vera fyrir alla. Við erum öll ólík, og samfélagið þarf á margvíslegum og ólíkum kröftum að halda.

Þorvaldur Þorvaldsson, trésmiður
Oddviti Alþýðufylkingarinnar í Reykjavík


Ljósmynd af umferðarskilti, cc: Börkur Sigurbjörnsson.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images