Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

DeCode greinir tennur 25 landnámsmanna: Reyndust 57% norrænir að uppruna

$
0
0

Í dag birtir tímaritið Science niðurstöður rannsóknar Íslenskrar erfðagreiningar á erfðamengi úr tönnum 25 manns frá landnámsöld. Segir í tilkynningu fyrirtækisins að niðurstöðurnar setji upphaf Íslandsbyggðar í nýtt ljós.

Erfðaefni landnámsmannanna var borið saman við arfgerðir frá íbúum Íslands, Bretlandseyja, Skandinavíu og annarra Evrópulanda, samkvæmt tilkynningunni, og var þar með „í fyrsta sinn hægt að meta beint uppruna einstaklinga frá landnámsöld“. Alls var raðgreint erfðaefni úr 27 líkamsleifum, en af þeim voru 25 frá tímabilinu 870 til 1100, þegar landnám Íslands er talið hafa átt sér stað.

Einsleitni jókst í aldanna rás

Samkvæmt greiningunni var uppruni landnemanna að 57% rakinn til Norðurlanda, og virðist mega ætla að þau 43% sem eftir standa verði að mestu rakin til Kelta. Ekki kemur fram í fréttatilkynningu hvort borin voru kennsl á fleiri upprunastaði í ættartrjám landnemanna, hverja þá eða að hversu miklu leyti.

Í tilkynningunni kemur fram að einsleitni „Íslendinga“ hafi aukist frá þessum tíma til dagsins í dag, og verði nú 70% af erfðamengi þeirra rakið til Norðurlanda. Ekki kemur fram við hvaða skilgreiningu á „Íslendingi“ er miðað í rannsókninni, hvort átt er við þá sem bera íslenskan ríkisborgararétt, aðeins innfædda eða enn þrengra mengi fólks.

Einsleitnin gagnleg fyrir fyrirtækið

Hvers vegna hlutdeild Kelta í erfðamengi Íslendinga dróst saman á liðnum öldum er ekki ljóst. Í fréttatilkynningunni kemur fram sú mögulega skýring að fólk af keltneskum uppruna hafi eignast færri afkvæmi en nýbúar af norrænum uppruna, þá vegna „þrælahalds og stéttskiptingar“. Þá er sagt að „blöndun við Dani á síðustu öldum“ gæti hafa haft áhrif til aukinnar einsleitni.

Að íbúar Íslands urðu „erfðafræðilega einsleitari“ í aldanna rás segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, að hafi verið hjálplegt við rekstur fyrirtækisins: „Þetta hefur gert leit okkar að erfðafræðilegum orsakaþáttum sjúkdóma á Íslandi aðeins auðveldari“.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images