Pedro Sánchez, sósíalistinn sem tók við embætti forsætisráðherra Spánar fyrir röskri viku, tilkynnti upp úr hádegi á mánudag að björgunarskipið MS Aquarius megi leggja að höfn á Spáni.
Nýr forsætis- og innanríkisráðherra Ítalíu, hægri-popúlistinn Matteo Salvini, tilkynnti á sunnudag að skipið fengi ekki að koma til hafnar á Ítalíu, og hefur það síðan haldið kyrru fyrir á Miðjarðarhafi, milli Sikileyjar og Möltu.
Um borð í skipinu eru 629 farþegar sem bjargað var á óskráðum ferðum yfir Miðjarðarhaf, út af ströndum Líbýu.
Yfirlýsingar ítalskra borgarstjóra ógildar
Borgarstjórar nokkurra ítalskra borga höfðu anmælt yfirlýsingu Salvinis og sagt skipinu frjálst að leggjast að sínum höfnum. Þær tilkynningar virðast aftur á móti afleiðingalausar á meðan ítalska landhelgisgæslan er ekki sama sinnis.
Samtökin Læknar án landamæra, sem taka þátt í rekstri björgunarskipsins, segja að ástand farþeganna um borð sé stöðugt en brýnt að ekki verði frekari tafir á landgöngu þeirra, einkum 7 þungaðra kvenna, 15 manns með alvarlega brúnaáverka og nokkurra sem hafa orðið fyrir ofhitnun og fengið sjó í lungu.




