Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

17. júní 2008 blakti fáni hundadagakonungs yfir Stjórnarráðinu

$
0
0
Fáni Jörundar

Fáninn sem Jörundur hundadagakonungur lét gera Íslandi, teiknaður samkvæmt lýsingu.

„Rétt í þessu var bylt­ing­ar­fáni Jör­und­ar Hunda­daga­kon­ungs strengd­ur á fána­stöng á þaki stjórn­ar­ráðsins. Þar flökt­ir hann ásamt ís­lenska fán­an­um sem án efa hef­ur van­helg­ast.

Þó Jör­und­ur hafi ekki verið al­gjör an­arkisti, held­ur krýnt sig sem vald­hafa Íslands, var til­ræði hans eina al­menni­lega til­raun­in til að koma af stétta­skipt­ingu og mis­rétti á Íslandi.

Við leggj­um eng­ar sér­stak­ar mæt­ur á Jör­und, frek­ar en nokk­urn ann­an vald­hafa, en met­um tilraun­ir hans til að færa valdið frá toppi píra­míd­ans til al­menn­ings.

Fyr­ir það virðum við hann og höld­um uppi hans heiðri, sem og allra þeirra sem berj­ast gegn ójöfnuði, valdníðslu og órétt­læti“

Úr tilkynningu sem send var fjölmiðlum fyrir tíu árum síðan, þann 17. júní 2008, þegar Haukur Hilmarsson dró fána Jörundar hundadagakonungs að húni á þaki Stjórnarráðsbyggingarinnar. Þrátt fyrir þessa greinargóðu tilkynningu hafði mbl.is eftir lögreglu að ekki væri „vitað hvað mann­in­um gekk til með at­hæf­inu“. Á vef mbl.is má sjá fleiri myndir frá atburðinum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images