Fréttamiðlar víða um heim, þar á meðal Íslandi, greindu frá því á þriðjudag, að ungur maður með foringjatign hefði verið rekinn úr Bandaríkjaher eftir að reisa hnefa á ljósmynd, taka ofan höfuðfatið sitt og afhjúpa, annars í fullum herskrúða, slagorð sem hann hafði tússað innan á húfuna: „kommúnismi mun sigra“.
Þetta var við útskrift úr bandaríska herskólanum West Point. Við sama tækifæri hneppti hann frá búningi sínum og afhjúpaði rauðan bol með áprentaðri hinni íkonísku mynd af andliti byltingarleiðtogans Che Guevara.
Hvetur aðra hermenn til að hætta þjónustu við heimsveldið
Atvikið átti sér stað árið 2016, ljósmyndirnar birtust á netinu árið 2017 og nú á dögunum var manninum, Spenser Rapone, nú 26 ára, loks vikið úr hernum. Nánar til tekið virðast yfirvöld hersins hafa tekið á móti afsögn hans, og samþykkt hana, eftir að hafa veitt honum áminningu fyrir „hátterni sem ekki sæmi herforingja“.
Rapone, sem segist hafa sótt um í herskólann þar sem hann hafi ekki haft efni á hefðbundnu háskólanámi, hvetur aðra „hermenn með samvisku til að leggja niður vopn sín og fylkja liði með mér og svo mörgum öðrum sem kjósa að hætta þjónustu við heimsveldið, og slást í för með okkur í byltingarhreyfingu.“
Ekki taka Skandinavíu til fyrirmyndar
Á Twitter gengur Rapone undir notandanafninu @punkrpoletarian og kynnir sig sem „Rudi (Dutschke) Can’t Fail“. Rudi Dutschke var í forystu stúdentauppreisnanna í Vestur-Þýskalandi 1968. Meðal áhugaverðs efnis sem Rapone og félagar hafa tekið til umræðu á Twitter síðustu vikur er grein eftir sagnfræðinginn Miles Macallister, sem kennir við Princeton-háskóla, um hvernig ríki Skandinavíu hafi „húkkað sér far“ með heimsveldum veraldar, frá nýlendutímanum til okkar daga. Greinin er knöpp og titill hennar gerir inntaki hennar ágæt skil: „The Scandinavians ‘hitchhiked’ their way to the boons of empire“.
Þeir sem leita að öðrum debatt innan Bandaríkjanna en þess sem geisar á milli Trump-liða og fulltrúa hefðbundinna stjórnmála, fengu ef til vill ágætan upphafsreit til að gramsa út frá, með krotinu í húfu kadettsins.




