„Við erum á Íslandi til að gefa hagvexti og viðskiptatengslum okkar nýjan byr eftir sigur 24. forseta okkar, herra Erdogan. Fyrst hittum við utanríkisráðherrann Guðlaug Þór Þórðarson og fórum saman yfir stöðuna.“
Eitthvað á þá leið, í grófri þýðingu hljóma skilaboð tyrkneska efnahagsmálaráðherrans Nihat Zeybekci, sem hann lét frá sér á Twitter, eftir undirritun endurnýjaðs fríverslunarsamnings við EFTA-löndin fjögur, Ísland, Noreg, Sviss og Liecthenstein, á Sauðárkróki á mánudag.
Með færslunni birti Zeybekci meðfylgjandi ljósmynd af fundi ráðherranna.
#Cumhurbaşkanımız Sn @RT_Erdogan liderliğinde kazandığımız #24Haziran zaferimizin ardından ekonomik ve ticari ilişkilerimize yeni bir ivme kazandırmak için İzlanda’dayız.
Güne, Dışişleri Bakanı Guðlaugur Þór Þórðarsonı ile bir araya gelerek başladık, değerlendirmelerde bulunduk pic.twitter.com/iaCNs44byw— Nihat Zeybekci
(@ZeybekciNihat) June 25, 2018
Guðlaugur Þór Þórðarson og flestir íslenskir fréttamiðlar hafa lagt áherslu á það í fréttum af fundinum að þar hafi Guðlaugur Þór rætt um mannréttindamál og mál Hauks Hilmarssonar.
(@ZeybekciNihat)



