Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

3. júlí: Vakningardagur No Borders

$
0
0

(English below)

Samtökin No Borders Iceland halda í dag, þriðjudaginn 3. júlí, upp á að tíu ár eru liðin síðan Haukur Hilmarsson og Jason Slade hlupu út á flugbraut á Keflavíkurflugvelli til þess að koma í veg fyrir brottflutning Paul Ramses sem þá leitaði verndar á Íslandi, eins og segir í tilkynningu. Klukkan 20 í kvöld hefst af því tilefni dagskrá í félagsrýminu Andrými, Bergþórugötu 20, og eru öll velkomin.

Vakningardagur No Borders —tilkynning
Á þriðjudaginn næstkomandi, 3. júlí, eru 10 ár liðin síðan Haukur Hilmarsson og Jason Slade hlupu út á flugbraut á Keflavíkurflugvelli til þess að koma í veg fyrir brottflutning Paul Ramses sem þá leitaði verndar á Íslandi. Málið vakti mikla athylgi þar sem Paul var aðskilinn fjölskyldu sinni við flutninginn og lauk því með því að Paul fékk vernd hér á landi. Í kjölfarið óx No Borders á Íslandi, upp frá hópi fólks sem lét sig réttindi flóttamanna á Íslandi varða. Síðan þá hefur No Borders á Íslandi barist fyrir réttindum flóttafólks á grasrótarstigi og mótmælt þeim fjölmörgu brottvísunum og því ofbeldi sem á sér stað á bak við luktar dyr stjórnsýslunnar og lögreglunnar.

Í tilefni af því að tíu ár eru liðin frá flugvallahlaupinu boðum við til vakningardags No Borders. Við bjóðum ykkur í kaffi, te og bakkelsi í Andrými 3. júlí kl. 20. Dagskráin verður með óformlegu móti, tími verður til að spjalla og mögulega verður tónlist.

Öll velkomin.

Ekki fleiri brottvísanir – engin manneskja er ólögleg!

July 3rd Celebration in Andrými
On Tuesday the 3rd of July 10 years have past since Haukur Hilmarsson and Jason Slade ran down the airport runway in Keflavik in order to stop the deportation of Paul Ramses who sought asylum in Iceland at the time. The case caught attention at the time and resulted in Paul receiving asylum here. In the aftermath of their action a group of people that was concerned with refugee rights grew into No Borders in Iceland. Since then No Borders Iceland has fought for the rights of refugees at a grassroots level and protested against the deportations and the violence that takes place behind the closed doors of Icelandic governmental institutions and the police.

On this occasion we’d like to invite you to celebrate the existence of No Borders Iceland. We’ll have coffee, tea and pastry in Andrými Tuesday the 3rd of July at 20:00. The event will be informal, there will be time for conversation and there might be music.

Everyone is welcome.
No more deportations – no-one is illegal!

Accessibility:
There is a step before the garden gate and then 5 steps leading to the main entrance, each 17 cm high, door widths in the building vary between 50 cm (upstairs washroom door) and 80 cm (entrance door), and the washrooms are so far only on the upper floor and in the basement. The door to the meeting room is 75 cm wide (as most other doors in the building).

Both washrooms in the building are gender neutral.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images