Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hannesarholt meinar Þrándi að sýna Nábrókar-Bjarna

$
0
0
Þrándur við opnun sýningar sinnar fyrir tíu árum síðan, árið 2008. Ljósmynd: Wikimedia Commons.

Þrándur við opnun sýningar sinnar fyrir tíu árum síðan, árið 2008. Ljósmynd: Wikimedia Commons.

Þrándur Þórarinsson, málari, vinnur nú að sýningu sem opnuð verður í Hannesarholti þann 6. október, í tilefni af fertugsafmæli hans. Þrándur á engan sinn líka meðal íslenskra listamanna og þó víðar væri leitað og hefur orðstír hans farið vaxandi með hverju verki á síðustu árum. Eftir að leita lengi í arf þjóðsagna og sögulegra minna hefur hann snúið sér í auknum mæli að samtímanum – um leið og myndmál, tækni og öll úrvinnsla ber áfram með sér andblæ, gott ef ekki lyktir, liðinna alda. Þannig er ekki laust við náþef af frægu málverki hans þar sem sjá má Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra, klæðast nábuxum, að þjóðlegum sið.

Nú ber svo við að stjórnendur Hannesarholts hafa, að sögn listamannsins, krafist þess að hann haldi þessu verki frá sýningunni. Á Facebook skrifar Þrándur, fimmtudaginn 4. október, eða tveimur dögum fyrir opnun:

„Illu heilli fæ ég ekki sýnt þessa mynd af NábrókarBjarna (eða SkollabuxnaBjarna), á afmælissýningu minni í Hannesarholti á Laugardag, vegna listræns ágreinings við staðarhaldara hússins. Mér þykir það miður þar sem þetta er með eftirlætisverkum mínum og ég hef ekki sýnt það hérlendis áður. Biðst hérmeð velvirðingar á því.“

Nábrókar-Bjarni.

Nábrókar-Bjarni, eftir Þránd Þórarinsson, málverk sem stjórnendur Hannesarholts virðast ekki vilja upp á vegg.

„Annars eru flest verkin bara hugguleg“

Þrándur er þessa stundina upptekinn við undirbúning sýningarinnar. Við náðum þó örstuttu tali af honum. Aðspurður hvort staðarhaldarar í Hannesarholti hafi gert athugasemdir við aðrar myndir hans sagði hann nei, en þó viti hann enn ekki „hvernig restinni af myndum mínum verður tekið. Ætla að hafa fæðandi sjálfsmyndina þarna. Verður forvitnilega að sjá viðbrögðin við því. Annars eru flest verkin bara hugguleg.“

Inntur eftir því hvort hann hafi lent í því áður að sýningarstjórar meini honum að sýna verk svaraði Þrándur líka neitandi: „Nei, þetta er fyrsta skipti sem ég lendi í svonalöguðu,“ en bætti því við að hann hafi reyndar „ekki mikið sýnt á svona sjálfs-hátíðlegum stöðum“.

Hjá Hannesarholti svaraði í símann kona sem var heyrilega brugðið yfir færslu Þránds. Innt eftir því hvort Þrándur færi með rétt mál svaraði hún því einu til að ef Kvennablaðið vildi verða einhverju nær um málið skyldi miðillinn ekkert hafa eftir henni að sinni, heldur gefa henni stund.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images