Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Geðheilsa ungs fólks í síbreytilegum heimi

$
0
0
Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir.

Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir.

Ólafur Þór Ævarsson skrifar:

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn 10. október er í dag. Þessi dagur er tileinkaður því markmiði að auka þekkingu og skilning á mikilvægi góðrar geðheilsu. Þetta er árlegt átak, á heimsvísu og að frumkvæði alþjóða heilbrigðistofnunarinnar. Þema dagsins í ár er geðheilsa ungs fólks í síbreytilegum heimi.

Það tímabil þegar við erum unglingar og á okkar fyrstu fullorðinsárum er tími mikilla breytinga. Við skiptum um skóla, förum í háskólanám, flytjum að heiman og jafnvel erlendis um tíma. Við stofnum okkar eigin fjölskyldu og fótum okkur á vinnumarkaðnum og leggjum grunn að lífstíl og orðspori. Þannig eru þetta tímar umbrota og álags sem fyrir marga eru spennandi og skemmtilegir en fyrir aðra erfiðir og streituvaldandi. Of margir álagsþættir og óvissa eða skortur á stuðningi og hvatningu leiðir til andlegrar vanlíðunar sem getur í vissum tilvikum leitt til geðsjúkdóma.

Það eru margs konar álagsþættir sem mæta unga fólkinu sem er á leið út í lífið og sumir segja að lífið sé flóknara og kröfurnar meiri nú en hjá fyrri kynslóðum, með meiri streitu og aukinni hættu á kulnun.

Þó að ný samskiptatækni hafi marga góða kosti þá getur sítenging við netið og samfélagsmiðlar verið mjög krefjandi um samskipti, hvenær og hvar sem er og valdið nýrri tegund af álagi.

Þessi aldurshópur sem fjallað er um hér, er að mörgu leiti viðkvæmur. Heilinn er enn að þroskast, persónuþættir að styrkjast, félagsfærni enn í mótun og sjálfstæði ótraust. Þetta eru árin sem margir hefja neyslu vímuefna, tóbaks, áfengis eða jafnvel eiturlyfja. Algengar tegundir geðveiki byrja líka oft á þessum árum, en talið er að um helmingur tilfella geðsjúkdóma byrji á þessu aldursskeiði. Því miður fá ekki allir sem veikjast greiningu eða viðeigandi meðferð. Þunglyndi er algengasti geðsjúkdómurinn en kvíði, félagfælni, fíkn og átraskanir eru einnig algengir sjúkdómar á þessum aldri. Um alla þessa sjúkdóma gildir að best er að greina þá sem fyrst og meðhöndla snemma.

Aukið andlegt þol

Ekki er nægilegt að hugsa eingöngu að líkamlegu atgerfi, hreyfigetu og vöðvastyrk. Það er einnig mikilvægt að efla álagsþol ungmenna og kenna þeim að takast á við streitu, áföll og erfiðleika svo þau standist nútímalegt álag sem best. Rannsóknir benda til að það gagnist ekki eingöngu þeim sjálfum heldur samfélaginu öllu, með meira framlagi til vinnumarkaðarins og eflingu fjölskyldunnar.

Fjölmargt er hægt að gera til forvarna og til að efla álagsþol og þekkingu á hvernig bregaðst megi við andlegri vanlíðan, streitu eða geðsjúkdómum.

Forvarnir

Fræðsla er mikilvægasti þáttur forvarna og ungt fólk þarf að fá fræðslu og leiðbeiningu í að takast á við lífið frá foreldrum og fjölskyldu. Þeir eldri geta verið góðar fyrirmyndir um hvernig ber að haga heilsusamlegum lífstíl með hófsemi í áfengisnotkun, andúð á tóbaksnotkun, hæfilegri hreyfingu og hvíld, jákvæðni og vandvirkni í samskiptum og samstöðu og samhjálp.

Kennarar kenna lífsleikni og hvernig tekist er á við áskoranir í námi, samvinnu, skipulag og setningu markmiða.

Sálfræðileg fræðsla og stuðningur í skólum er mikilvægur ekki síst til að kenna á fyrstu einkenni andlegrar vanlíðunar og hvernig best er að bregðast við álagi með hreyfingu, hvíld og núvitund. Samhæfðar aðgerðir með gagnreyndum aðferðum eiga að beinast að unga fólkinu sjálfu og einnig að þeim stofnunum og hópum sem hafa með þau að gera. T.d. ætti endurmenntun heilbrigðisstarfsfólks að miða enn frekar að aðferðum til forvarna og sérstöðu þessa aldurshóps. Kennarar og skólastjórnendur þurfa meiri fræðslu og handleiðslu til að takast á við þau tilvik þegar um andlega vanlíðan eða geðveiki er að ræða.

Mikilvægt er að stjórnvöld átti sig á hagkvæmni fjárfestinga til forvarna á þessu sviði. Þá er ekki einungis átt við beinan kostnað til heilbrigðismála heldur er líka mikilvægt að styðja félagskerfið til að hafa góða getu til að standa vörð um hagsmuni og velferð unga fóksins og fjölskyldna þeirra. Stuðningur við þennan aldurshóp hvað varðar menntun, innkomu á vinnumarkaðinn eða aðstoð við að kaupa fyrstu íbúð er einnig mjög mikilvægur.

Látum þema þessa dags verða okkur hvatningu til að við leggjumst öll á eitt og gerum hvað við getum til að efla, hvetja og styðja við unga fólkið í landinu.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283