Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Misskilningurinn „Afvopnunarráðstefna NATO“ hófst hjá Forsætisráðuneytinu

$
0
0

Fyrrum formaður Samtaka hernaðarandstæðinga lýsti á þriðjudag undrun sinni á að sá misskilningur hefði komist í umferð að Gjöreyðingarvopnaráðstefna NATO, sem haldin verður í Reykjavík síðar í mánuðinum, væri afvopnunarráðstefna. „Það verður afvopnunarráðstefna haldin í Háskólanum á sama tíma, þar sem Beatrice Fihn frá ICAN kemur og talar. Það er augljóslega ekki Nató-fundurinn,“ skrifar Stefán Pálsson á Facebook, og spyr: „Hefur þessum fundum verið slegið saman í fjölmiðlum?“

Tilefnið er grein Kvennablaðsins um hið hervædda haust sem nú ber að garði á Íslandi, þar sem saman fer risaæfingin Trident Juncture, fyrrnefnd Gjöreyðingarráðstefna, viðvera flugmóðurskipsins USS Truman, vilji NATO til að koma upp olíubirgðum í landinu, og fleira.

Tvær ráðstefnur fyrir eina

Eins og Stefán skrifar er fulltrúum samtakanna ICAN, sem barist hafa fyrir alþjóðlegu banni við kjarnorkuvopnum, boðið til einnar ráðstefnu í Reykjavík, sem nefnd er afvopnunarráðstefna, um svipað leyti og NATO heldur sína ráðstefnu, sem fjallar um gjöreyðingarvopn en stefnir ekki að afvopnun. Þvert á móti hafa NATO-ríkin, að Íslandi meðtöldu, lýst sig andvíg alþjóðlegu banni við kjarnorkuvopnum og staðið gegn því að það nái fram að ganga á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.

Þess misskilnings virðist hins vegar hafa gætt víða að hér sé um að ræða einu og sömu ráðstefnuna, „afvopnunarráðstefnu NATO“, sem ekki er til. Hvernig kom sá misskilningur til sögunnar? Fyrstu fréttir af viðburðunum báðum bárust í jólí á þessu ári, undir lok leiðtogafundar NATO-ríkja í Brussel. Morgunblaðið sagði Katrínu Jakobsdóttur hafa „boðið full­trú­um ICAN, alþjóðlegra sam­taka sem berj­ast fyr­ir eyðingu kjarn­orku­vopna, að koma til Íslands í októ­ber þar sem Ísland mun hýsa af­vopn­un­ar­ráðstefnu NATO“. RÚV skrifaði: „Ísland verður vettvangur afvopnunarráðstefnu á vegum Atlantshafsbandalagsins,“ og á Vísi mátti lesa að Katrín hyggist „bjóða ICAN-samtökunum sem fengu friðarverðlaun Nóbels í fyrra til afvopnunarráðstefnu NATO í Reykjavík í haust“.

Enn í þessari viku, á mánudag, birtist í Kjarnanum grein sem hefst á orðunum: „Ísland mun hýsa afvopn­un­ar­ráð­stefnu NATO í lok mán­að­ar­ins“.

Orðaleppurinn Afvopnunarráðstefna kominn frá Forsætisráðherra

Það er lítil furða að þetta vongóða orðalag hafi náð fótfestu í fjölmiðlum. Þegar nánar er að gáð er ráðstefnu NATO fyrst lýst sem afvopnunarráðstefnu í fréttatilkynningu Forsætisráðuneytisins í júlí, en þar segir:

„Ísland mun hýsa afvopnunarráðstefnu á vegum Atlantshafsbandalagsins í haust. Við munum bjóða fulltrúum ICAN að taka þátt í hliðarviðburði …“

Þannig hefur fundunum tveimur verið slegið saman, ekki bara í fjölmiðlum heldur af æðstu ráðamönnum, frá því þeir komu fyrst til tals.

Að skjóta því að frá upphafi að fulltrúum ICAN sé boðið til þátttöku í allt öðrum viðburði, við kynningu á NATO-ráðstefnunni, er svonefndur spuni. Að kalla viðburð sem ber yfirskriftina „NATO Conference on Weapons of Mass Destruction“ afvopnunarráðstefnu er aftur á móti hreinn tilbúningur, ósannindi í þýðingu. Gjöreyðingarvopnaráðstefna Atlantshafsbandalagsins er bein og gegnsæ þýðing. Þyki hún heldur óþjál mætti stytta heitið, til dæmis, í Gereyðingarþing. Eða eitthvað grípandi á við Tætum og tryllum 2018.

Um fundinn sem Beatrice Fihn er boðið til, fyrir hönd ICAN, finnum við sem stendur engar upplýsingar á vef HÍ, en upplýsingar um hann hljóta að koma í leitirnar áður en líður á löngu.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283