Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ullarpeysuþvottur – Svona þværðu ullarpeysur

$
0
0

Ég held að þetta myndband í grjónagrautarkennslu sem ég setti inn á Kvennablaðið fyrir skemmstu sé upphafið að þáttröð sem ég ætla að kalla „Kerling inn við beinið“.  Ég get hvorki lofað að þessir þættir verði sérlega skemmtilegir eða í hágæðum en ég vona að þeir gagnist einhverjum. Ég biðst afsökunar á því að ljósmynd með pósti sé villandi því það mætti halda að ég hyggðist þvo köttinn minn, Bartok, en svo er ekki. Hann var bara að þvælast í kringum mig þegar ég var að taka til við þáttagerðina.

Ég er alveg með það á heilanum að gera eitthvað gagnlegt. Og það er afskaplega gagnlegt að kunna að handþvo ullarfatnað. Ég veit að fínar þvottavélar halda því fram að þær séu með ullarprógramm sem sé hreint frábært, en enn hef ég ekki kynnst þeirri þvottavél sem með tímanum malar ekki ullarplögg mélinu smærra.

Ég nota ullarsápu sem heitir Þokki– dæs. Mig langar að framleiða eitthvað sem heitir óþokki.

Myndbandið er tekið á síma og klippt í imovie. Það þarf ekki að snúa tölvunni upp á rönd og hlið til að horfa á það sem er nýlunda í minni þáttagerð en mér er sumsé að fara fram við myndbandsgerðina.

P.S. Af því að mér láðist að segja frá því í myndbandinu þá læt ég plöggin þ.e peysurnar ekki liggja lengur en svona hálftíma í sápuvatninu.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images