Þegar sérsveit Ríkislögreglustjóra hefur tekið þátt í heræfingum annarra landa hefur það alltaf verið á forsendum borgaralegrar lögreglusveitar, en ekki sem hersveit. Þetta kemur fram í svari Dómsmálaráðuneytisins til Kvennablaðsins.
Í tilefni þátttöku sérsveitar Ríkislögreglustjóra í heræfingunni Trident Juncture, spurði Kvennablaðið Utanríkisráðuneytið hvort sveitin æfði sem hersveit eða lögreglusveit. Utanríkisráðuneytið svaraði vafningalaust að sérsveitin tæki þátt í æfingunni sem borgaraleg lögreglusveit.
Við eftirgrennslan komu fram upplýsingar um að sérsveitin hefði á undanliðnum árum endurtekið æft með sérsveitum danskra og norskra herja. Kvennablaðið fylgdi því fyrirspurninni eftir með því að spyrja Dómsmálaráðuneytið hvort sérsveit Ríkislögreglustjóra hefði í þeim tilfellum alltaf æft sem lögreglusveit, eða hvort hún hefði einhvern tíma tekið þátt í slíkum æfingum á forsendum hersveitar. Dómsmálaráðuneytið svaraði á þriðjudag:
„Sérsveit ríkislögreglustjóra er lögreglusérsveit og verkefni hennar og þjálfun eru samkvæmt eðli og tilgangi hennar. Það er þekkt að sérsveitir herja hafa æft með lögregluhersveitinni í tilfellum þar sem tekist er á við hryðjuverkaógn. Í slíkum tilvikum er hlutverk sérsveitarinnar borgaralegs eðlis.“



