Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Áfram stelpur!

$
0
0

Mamma mín Bríet Héðinsdóttir heitin var meðlimur í Rauðsokkuhreyfingunni og þurfti hún oft að hafa mig í eftirdragi á fundum hreyfingarinnar í aðdraganda kvennaverkfallsins 1975. Mér er þessi tími minnistæður þótt ég hafi verið tæpra sex ára. Stemmningin, andrúmsloftið var rafmagnað. Þarna voru baráttukonur saman komnar fullar af eldmóð, þori og vilja til breytinga samfélaginu til handa.

Í dag endurtaka íslenskar konur leikinn undir slagorðinu:

BREYTUM EKKI KONUM – BREYTUM SAMFÉLAGINU!
Nú er nóg komið! Krefjumst jafnra kjara og öryggis á vinnustað! Göngum út 24. október og höfum hátt!

Nánar um viðburðinn hér.

Ljósmynd hér að ofan er af Austurvelli umræddan dag árið 1975. Hér má þekkja leikarann og þýðandann Sigurð Karlsson og Bríeti Héðinsdóttur leikkonu og leikstjóra. Börnin eru Karl Sigurðsson og Elín Sigurðardóttir.

Eftirfarandi brot er úr endurminningabók, Í fylgd með fullorðnum, sem ég skrifaði fyrir margt löngu og kom út hjá JPV árið 2005.

 

„Ég sit á gólfinu úti í horni og teikna. Ég er á fundi með mömmu hjá Rauðsokkuhreyfingunni. Það er mikið skrafað. Og hátt eins og í fuglabjargi. Undirbúningur fyrir kvennadaginn. Konurnar ætla að umbreyta heiminum, gera byltingu næstkomandi fimmtudag. Snúa kynjahlutverkunum við. Þær hafa komist að því að karlar eru orsök alls ills. Þeir hafa haldið konum niðri öldum saman.

Á þessum fundum er ævinlega einn karl. Situr heimóttarlegur afsíðis eins og sauður. Hvað hann er að gera hér er mér ráðgáta. Enda hefur hann sig hægan og segir ekki margt. Hann er rauðsokki.

Verður maður að vera í rauðum sokkum til að geta orðið rauðsokka?
Nei, elskan mín. Þú getur verið í hvaða sokkum sem er.
Má vera í ullarsokkum?
Já, það má vera í ullarsokkum.
En nælonsokkum?

Inn um bréfablúguna heima dettur Rauðsokkublaðið. Þar er mynd af glyðrulegri konu á svörtum brjóstahaldara. Hún er grettin á svip og er með þjáningarhrukkur milli augnabrúnanna. Fyrir neðan myndina er skýring á þjáningum konunnar.
Brjóstahaldari er tæki búin til af karlmönnum í því skyni að kúga konur.
Þetta veldur mér miklum heilabrotum.

Rauðsokkukórinn er að æfa. Mér finnst gaman að hlusta á þær syngja. Þær syngja af fítonskrafti hvert lagið á fætur öðru. Innblásnar af kvenréttindum. Sumar eru alveg öskureiðar í framan.
Mamma syngur hástöfum. Hún er orðin svolítið rauð í framan af æsingi. Nú fer að versna í því. Hún syngur hærra en hinar. Miklu hærra. Ég fer hjá mér. Ég vildi óska að hún væri svolítið meira pen. Bara pínu. Hún slær taktinn svo fast með öðrum fæti að ég er logandi hrædd um að hún muni ganga niður úr gólfinu.

Heimóttarlegi karlinn er að flokka dreifirit í bunka. Gerir það af natni og kippir sé ekkert upp við sönginn. Vandar sig heil ósköp og telur afar hægt. Hann er svo einbeittur á svip að tungan lekur út í annað munnvikið. Svolítið eins og talningin vefjist fyrir honum. Kannski kann hann ekki að telja.“

—————————

Sjáið þær á Austurvelli! Þessum konum liggur eitthvað á hjarta. Megi rauðsokkurnar hafa eilífa þökk fyrir baráttuna sem þær háðu konum til handa:


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283