Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Verkalýðsbaráttan mun gera Önnu lífið leitt, segir Viðskiptaráð

$
0
0

Viðskiptaráð sendi fjölmiðlum tilkynningu á miðvikudagsmorgun, sem ráðið kallar raunar „pakka“. Í tölvupóstinum má finna upphaf tilkynningarinnar en til að lesa hana alla skal smellt á hlekk sem er merktur „opna pakkann“. Pakkinn reynist innihalda 10 ástæður þess að fyrirtæki hafi „lítið eða ekkert“ svigrúm til launahækkana á næstunni. Flestar eru ástæðurnar settar fram í línuritum en þar er þó einnig að finna dæmisögur á við þessa:

„Ímyndum okkur eigandann Önnu sem á og rekur lítið þjónustufyrirtæki sem lýst er hér á mynd 9. Hjá fyrirtækinu starfa fjórir starfsmenn auk Önnu og eins og sjá má vegur launakostnaður þungt í rekstrinum eins og hjá svo mörgum fyrirtækjum. Ímyndum okkur að laun starfsmanna fyrirtækisins hækki um 20% vegna hækkana í kjarasamningum. Ef Anna grípur ekki til neinna ráðstafanna mun fyrirtæki hennar fara í 3 milljóna króna taprekstur. Slíkur rekstur gengur ekki til lengdar.“

Þrátt fyrir að hin framtakssama Anna sjái ekki fram úr mánaðamótunum ef starfsfólkið hennar tekur höndum saman um kröfugerð er fullyrt í pakka viðskiptaráðs: „Forsvarsmenn fyrirtækja vilja hag starfsfólks síns sem bestan“. Raunar er það endurtekið stef í pakka Viðskiptaráðs og lýkur pakkanum á því að staðhæfingin birtist sem nokkurs konar hótun:

„Það er ósk allra að kaupmáttur landsmanna sé sem mestur og að hér séu greidd há laun. Ekkert verður þó til úr engu og launin þurfa að endurspegla íslenskan veruleika. Ef þau gera það ekki tapar meginþorri landsmanna, ekki síst þeir tekjulægstu sem rannsóknir benda til að verði verst úti í verðbólguskoti. Höfum ofangreint í huga — við erum öll á sama báti.“

Samkvæmt samantekt Kjarnans í mars sl, eru meðallaun forstjóra fyrirtækja í Kauphöll Íslands 4,7 milljónir á mánuði. Ólíkt Önnu, úr dæmisögu Viðskiptaráðs, eru allir forstjórarnir sem þar koma við sögu karlar.

Pakkanum fylgdi loks krúttleg þessi krúttlega ljósmynd af prúðu og nægjusömu pari, sem lætur ekki takmarkanir efnisheimsins standa í vegi hamingju sinnar:

Hver veit nema þetta sé sjálf Anna?


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images