Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Theresa May ber Brexit-samkomulag undir ráðherra sína

$
0
0

Klukkan 14 í dag, miðvikudag, munu ráðherrar í ríkisstjórn Theresu May koma saman til að ræða samkomulag Bretlands og Evrópusambandsins um hvernig sambandi konungsríkisins við sambandið verður háttað eftir aðskilnað þeirra.

Úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu tekur gildi þann 29. mars næstkomandi, óháð útkomu samningaviðræðnanna. Theresa May vonast til að ríkisstjórn hennar staðfesti samkomulagið sem náðst hefur við fulltrúa ESB, um fyrirkomulag viðskipta, landamæra og annars, eftir úrsögnina. Í dag leggur hún loks drög að þessu samkomulagi fyrir ráðherra sína. Drögin eru sögð nema 500 blaðsíðum.

Meðal áskorana við úrsögnina eru spurningar um hvernig samskiptum Bretlands og Írlands verður háttað: Írland verður áfram aðildarríki ESB, eftir úrsögn Bretlands, og þátttakandi í hinu landamæralausa svæði fjórfrelsisins. Ef ekkert samkomulag næst milli Bretlands og Evrópusambandsins, um samband þeirra eftir úrsögn, er Írland skuldbundið til að umgangast landamærin að Bretlandi sem ytri landamæri Evrópusambandsins, og taka þar upp fulla landamæravörslu.

Að herða landamæravörslu milli Írlands og Bretlands, eða jafnvel koma upp einhvers konar skorðum innan Bretlands, milli Norður-Írlands og Englands, væri að mati flestra skaðlegt, svo ekki sé dýpra tekið í árinni. Gætt hefur ótta á að slíkar breytingar gætu jafnvel stefnt í voða þeim friði sem ríkt hefur á Norður-Írlandi frá því að skæruhernaði lauk þar með Good Friday samkomulaginu 1998.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images