Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Kínversk stjórnvöld grunuð um að láta á annan tug námsmanna hverfa

$
0
0

Á annan tug námsmanna í Kína hurfu um liðna helgi og hefur ekki spurst til þeirra síðan. Samnemendur og starfsfólk við háskóla þeirra óttast að þeim hafi verið rænt af leyniþjónustudeildum stjórnvalda, og að það hafi þá að gera með tengsl þeirra allra við verkalýðsbaráttu, ásamt höfundum og akademískum viðfangsefnum sem henni tengjast.

Látin hverfa um borð í bíla, vitni barin

Nemendur og brautskráðir nemendur frá Peking-háskóla, í borginni sem nú heitir Beijing, hafa greint frá því á opnum vettvangi á netinu að þau hafi orðið fyrir barsmíðum frá hópi manna í ómerktum klæðum, þegar þau urðu vitni að því að sami hópur neyddi nýbrautskráðan nemanda að nafni Zhang Shengye um borð í bíl síðastliðið föstudagskvöld, 9. nóvember.

Sagnfræðinemi á fjórða ári segir fimm svartklæddar manneskjur hafa hrint sér í jörðina fyrir utan fyrirlestrasal. Þegar hann spurði hver þau væru bölvaði einn honum og sagði að ef hann þagnaði ekki myndu þau halda áfram að berja hann. Skömmu síðar hafi annar meðal hinna svartklæddu tekið að sparka í höfuð honum. Þá segist hann hafa séð mann dreginn um borð í bíl og ekið burt. Fleiri sambærilegar frásagnir hafa borist frá sama kvöldi: læknanemi á þrijða ári segir að dökklætt fólk hafi ruðst að honum, knúið hann niður og haldið honum liggjandi þar til honum blæddi.

Upphaflegu færslunni svaraði öryggisdeild skólans með meldingu um að þar hefði verið á ferð „lögregludeild sem hefði lögum samkvæmt fært grunaðan mann í varðhald … sem hvorki er núverandi nemandi, kennari né starfsmaður skólans.“ Washington Post segist hafa staðfest uppruna orðsendingarinnar.

Látin hverfa um borð í bíla, vitni barin

Aðrir meðal þeirra sem hafa horfið bjuggu og voru við nám í Shenzhen, Guangzhou og Sjanghæ. Í öllum tilfellum er um að ræða nemendur við „elítu-háskóla“, það er háskóla sem þykja skara fram úr og er ætlað að skara fram úr, í rannsóknarstarfi og gæðum menntunar. Öll voru þau þátttakendur í fyrrnefndum stuðningshópi, hreyfingu ungra marxískra aðgerðasinna sem stofnuð var síðastliðið sumar til stuðnings verkafólki í verksmiðju Jasic Technology.

Fyrrnefndur Zhang Shengye, sem yfirvöld handtóku með þessum hætti við Peking-háskóla, er sagður hafa veri0ð framarlega í þeirri baráttu, einn af 50 manns sem tóku þátt í mótmælum með verkafólki í grennd við Zhenzhen í ágúst síðastliðnum, sem hafði verið rekið frá störfum við fyrirtækið þegar þau reyndu að stofna stéttarfélag.

Aðferðin gömul, skotmörkin nýrri

Sveitir á vegum kínverska kommúnistaflokksins láta aðgerðasinna reglubundið „hverfa“, segir í umfjöllun Washington Post um málið, enda óttist flokkurinn bandalög og mögulegar ögranir við eigin yfirráð. Þá eru kínversk stjórnvöld sögð hafa sérstakar gætur, enn þann dag í dag, á mögulegum hreyfingum háskólastúdenta, vegna mótmælanna á Torgi hins himneska friðar, sem yfirvöld brutu á bak aftur með hervaldi, árið 1989. CNN segir ofsóknir stjórnvalda gegn andófshópum, helst áður en þeir myndast, hafa færst í aukana undir forystu núverandi forseta alþýðulýðveldisins, Xi Jinping.

Yfirlýstir marxistar eru aftur á móti óvenjulegt skotmark slíkra aðgerða þar sem þeir skírskota til sömu viðmiða og stjórnvöld sjálf gera til réttlætingar á yfirráðum kommúnistaflokksins og valdbeitingu stjórnvalda.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images