Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Konu í Danmörku neitað um bætur nema hún reyni raflostsmeðferð

$
0
0

Anna, heimildamaður Kvennablaðsins um málefni öryrkja í Danmörku, bendir blaðinu á viðtal við konu sem var neitað um bætur þegar hún vildi ekki undirgangast raflostsmeðferð. Fréttin er frá árinu 2014, skömmu eftir innnleiðingu starfsgetumats í Danmörku. „Til að fá örorku verður að vera búið að láta reyna á allar mögulegar tegundir að meðferð,“ útskýrir Anna.

Konan sem um ræðir heitir Pia Jakobsen og var, þegar mál hennar kom til umfjöllunar í Ekstrabladet, 48 ára gömul. Þá hafði hún frá unglingsárum, alls í 33 ár, þjáðst af alvarlegu þunglyndi og persónuleikaröskunum sem gerðu henni erfitt fyrir að halda starfi.

Sérfræðingar við geðheilsustofnun í Djursland, þar sem konan býr, höfðu annast hana í þrjú ár og sögðu hana hljóta bestu mögulegu meðferð. Veikindi hennar væru hins vegar alvarleg og samræmdust illa kröfum vinnumarkaðar.

Ráðgjafar á vegum sveitarfélagsins andmæltu hins vegar þessu mati. Án þess að hitta Piu Jakobsen í eigin persónu og án nokkurrar sérþekkingar á geðlækningum, sögðu þeir að starfsgetu hennar mætti til dæmis efla með því að láta reyna á raflostsmeðferð.

Þetta álit ráðgjafanna var andstætt áliti tveggja sérfræðinga sem höfðu þegar tekið mál Jakobsen til skoðunar. Álit ráðgjafanna hefur aftur á móti annars konar vægi, þar sem umsækjandi um örorkubætur hefur, í krafti starfsgetumats eins og það hefur verið útfært í Danmörku, ekki rétt á bótum fyrr en allir aðrir valkostir hafa verið þrautreyndir. Að meðtalinni raflostsmeðferð, ef ráðgjöfunum býður svo við að horfa. „Ég skil ekki hvers vegna sveitarfélagið fylgir þessari ráðgjöf frekar en umsögn míns læknis og sérfræðinga,“ sagði konan í samtali við Ekstrabladet. „Ég held að þau túlki reglurnar eftir því sem hentar fjárhagslegum forsendum.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images