„„Stórfundur“ VG um verkalýðsmál fór fram um helgina en Katrín Jakobsdóttir forðaði sér af fundinum áður en fundargestum gafst tími til að spyrja hana spurninga. Ræða Katrínar þótt heldur ekki upp á marga fiska en hún fjallaði af stórum hluta um umhverfismál.“
—Svo segir í Facebook-færslu hópsins Jæja síðastliðinn mánudag, en færslunni fylgir mynd af auðu sæti meðal fundargesta.
Í þeirri frásögn af fundinum sem birtist á vefsíðu VG tveimur dögum fyrr, laugardaginn 17. nóv., eru lagðar aðrar áherslur. Segir þar að húsfyllir hafi verið á fundinum. Forsætisráðherra hafi farið „yfir aðgerðir sem fyrirhugaðar eru af hálfu stjórnvalda til að bæta hag vinnandi fólks“. Þá hafi Drífa Snædal, nýkjörinn forseti ASÍ, hvatt „VG til dáða sem vinstri flokk“ og forsætisráðherra tekið undir. Katrín Jakobsdóttir hafi sagt „mikilvægt að eyða óvissu launafólks á húsnæðismarkaði og koma sér saman um fjölbreyttar aðgerðir til að bæta úr skorti á húsnæði sem sé einn stærsti áhyggjuvaldur láglaunafólks“.
Hópurinn Jæja skipulagði meðal annars mótmælin 4. apríl 2016, þegar krafist var afsagnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, þá forsætisráðherra, eftir að ljóstrað var upp um eignir fjölskyldu hans á aflandseyju og hagsmuni sem „erlends kröfuhafa“ gagnvart íslensku bönkunum.
"Stórfundur" VG um verkalýðsmál fór fram um helgina en Katrín Jakobsdóttir forðaði sér af fundinum áður en fundargestum…
Posted by Jæja on Sunnudagur, 18. nóvember 2018





