Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Auglýsingar þýskra stjórnvalda hvetja innflytjendur til að flytja til baka

$
0
0
Horst Seehofer, innanríkisráðherra Þýskalands.

Horst Seehofer, innanríkisráðherra Þýskalands.

Horst Seehofer, innanríkisráðherra Þýskalands, er harður andstæðingur stefnu Angelu Merkel, kanslara landsins, í málum innflytjenda, einkum frá árinu 2016, þegar Merkel lét af beitingu Dyflinnarreglugerðarinnar gegn flóttafólki frá Sýrlandi. Seehofer hefur meðal annars hótað að kæra eigin ríkisstjórn fyrir stjórnarskrárdómstóli landsins vegna málsins.

Síðustu daga hefur ráðuneyti hans hafið herferð í almannarýmum í Þýskalandi, með veggspjöldum sem auglýsa þá „aðstoð“ sem ráðuneytið veitir flóttafólki til að flytja aftur til upprunalanda sinna. Yfirskrift herferðarinnar er slagorðið: Dein land. Deine Zukunft. Jetzt! Eða: Þitt land, þín framtíð, núna!

Hvatningin til markhópa herferðarinnar um að hypja sig burt fer þannig ekki á milli mála, né fer á milli mála hverjir tilheyra markhópunum: við hlið slagorðsins getur, á veggspjöldunum, að líta þjóðfána í eftirfarandi röð: fána Afganistans, Rússlands, Írak, Indlands, Líbanon, Pakistan, Tyrklands, Líbanon, Nígeríu, Armeníu, Gana, Alsír, Marokkó, Íran – og svo framvegis. Fyrir utan Rússland og valin Austur-Evrópuríki tilheyra fánarnir allir löndum Norður-Afríku og Mið-Austurlanda.

Herferðin fer fram á sjö tungumálum. Þar er þeim innflytjendum sem tilkynna stjórnvöldum vilja sinn til að flytja aftur til upprunalands síns fyrir árslok boðin rýmri fjárhagsaðstoð við brottflutninginn en annars.

„Örlög mannfólks ganga kaupum og sölu eins og bílar“

Meðal þeirra sem hafa gagnrýnt herferðina er Bernd Mesovic, yfirmaður lögfræðideildar samtakanna Pro Asyl, sem berjast fyrir réttindum flóttafólks. Mesovic segir þetta átak stjórnvalda og auglýsingaherferðina sem fylgir virka eins og sumar- og vetrarútsölu hafi verið steypt í eina. Sven Giegold, Evrópuþingmaður Græningja, skrifaði á Twitter: „Örlög mannfólks ganga kaupum og sölu eins og bílar, bankareikningar og símkort. Landaflutningar eru ekki vara.“

Í borgarrýmum er herferðinni ekki heldur tekið þegjandi og hljóðalaust. Á ljósmyndinni sem fylgir þessari frétt getur að líta veggspjald á neðanjarðarstöð í höfuðborg Þýskalands. Veggspjaldið hefur verið myndarlega „paintbombað“, sem er rótgróin og einföld aðferð aðgerðahópa við gagnrýni á skilaboð í almannarými.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images