Kastljós gærkvöldsins skartaði þremur verkalýðsforkólfum, þeim Sólveigu Önnu Jónsdóttur, Ragnari Þóri Ingólfssyni og Drífu Snædal. Þeim var tíðrætt um stéttaskiptingu í landinu og breytingum þeim sem nauðsynlegar eru til að jöfnuður náist í samfélaginu. Augljóst er að nú kveður við nýjan tón í verkalýðsforystu landsins og að þau munu freista þess að gera allt sem í valdi þeirra stendur til að koma hér á umbótum jafnvel að nýta sér lífeyrissjóðakerfið sem er grundvöllur fjárfestinga á Íslandi til að knýja á um kjarasamninga.
Við hvetjum ykkur til að hlusta og horfa á þessa klippu hér fyrir neðan en Lára Hanna Einarsdóttir tók saman:






