Landsnefnd UN Women á Íslandi hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna Klaustursmálsins svokallaða. Skemmst er að minnast að Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra tók við HeForShe-verðlaunum UN Women árið 2015 en þau eru veitt því landi sem stendur sig best í að fá karla og drengi til liðs við jafnréttisbaráttuna. Gunnar Bragi lét hafa eftir sér að hann hefði hrifist mjög af tölu leikkonunnar Emmu Watson sem hélt fyrirlestur um jafnrétti kynjanna í New York og fengið við það hvatningu að láta jafnrétti sig varða. Í viðtali sem birtist í The Telegraph sagði Gunnar Bragi:
„Við ákváðum að setja þessa hugmynd fram, við getum kannski kallað hana okkar framlag til umræðunnar um kynjajafnrétti og ofbeldi gegn konum“ segir Sveinsson. „Við ætlum að fá karlmenn til að koma saman og ræða kynjajafnrétti.“
Það er úr þessum jarðvegi sem Rakarastofan er sprottin, „Hún vísar til þess sem gerist á rakarastofum og í búningsklefum og þess sem karlar ræða sín á milli – pólitík, stelpur,“ segir hann. „Við erum að þessu til þess að breyta þeirri umræðu sem á sér stað á rakarastofum. Við þurfum að breyta staðalmyndum og þeim hugmyndum um konur sem karlmenn ganga með í kollinum.“
Með öðrum orðum, hann vill að málþingið verki eins og hópur karlmanna sé á barnum að tala um konur. Hann vill að karlar hverfi frá „gauragríni“ þar sem konur verða viðfang subbulegs húmors og ræði þess í stað saman eins og fullorðnir men um veruleika kynjajafnréttis (eða skort á því).
Enski frumtextinn hér að neðan og í hlekk:
“We decided to put forward this idea, maybe we can say that it is contribution to the discussion on gender equality and violence against women,” Sveinsson tells me. “We’re going to have guys meeting together to talk about gender equality.”
That’s where the whole ‘Barbershop’ element comes from. “It’s referring to what happens in barbershops and locker rooms and what do boys talk about – politics, girls,” he says. “We’re here to change this discussion that we have when we go to the barber. We have to change these stereotypes and these ideas that are in men’s heads when it comes to women.”
In other words, he wants the conference to feel like a bunch of guys chatting about women in the pub. He wants men to ditch the ‘lad banter’ where women are the butt of crude jokes, in exchange for an adult conversation about the reality of gender equality (or the lack thereof).

Á sama tíma var komst Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra á blað sem einn merkasti karl femínisti samtímans samkvæmt Financial Times en hann var þá einn tíu þjóðarleiðtoga sem leiddi verkefni HeForShe, IMPACT 10x10x10. Verkefnið var fyrst kynnt í janúar 2015 á World Economic Forum í Davos.

Yfirlýsingin frá Landsnefnd UN Women á Íslandi:
Landsnefnd UN Women á Íslandi fordæmir þá kvenfyrirlitningu og hatursorðræðu sem Gunnar Bragi Sveinsson og fimm aðrir alþingismenn viðhöfðu á Klausturbar 20. nóvember síðastliðinn. Þau ummæli sem vitnað hefur verið til eru algjörlega óásættanleg og staðfesta hve mikið verk er enn óunnið í baráttunni fyrir kynjajafnrétti á Íslandi.
Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, segir stjórn og starfsfólk UN Women á Íslandi harmi slegið og sérstaklega vonsvikið yfir því að fyrrverandi utanríkisráðherra, hafi með þessum hætti skaðað orðspor Barbershop verkfærakistunnar og HeForShe hreyfingu UN Women sem gengur ekki síst út á að uppræta niðrandi tal um konur. Framkvæmdastýra UN Women á Íslandi er nú við störf í Malaví við innleiðingu Barbershop verkfærakistunnar í fyrsta sinn í Afríku við frábærar undirtektir í helsta samstarfslandi íslenskra stjórnvalda í þróunarsamvinnu.






