Hermann Stefánsson skrifar:
Þegar rykið var byrjað að setjast í samkundunni á Klausturbarnum kemur þjónustustúlkan og einhver, ég held að það sé Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, segir henni að senda bara reikninginn á herbergi 305. Sennilega er þetta skásti brandarinn í samsætinu. Svo maður reyni að sjá einhverjar bjartar hliðar á dapurlegri tilvist. Svo maður reyni að stilla sig um að upphefja sig vegna siðferðislegra yfirburða sinna. Já, sendu bara reikninginn á herbergi 305, segir Sigmundur og hlær, áður en reikningurinn er svo borgaður. Ég hefði sjálfur getað sagt þennan brandara. Klaustur er ekki hótel, mér vitanlega. Þar eru engin herbergi.
Annað smáfyndið atriði er þegar Gunnar Bragi fer á klósettið og segir þeim sem eftir sitja að hljóðrita samræðurnar á meðan svo hann missi ekki af neinu.
En svo er þetta kannski ekki fyndið heldur hvort öðru raunverulegra. Staðreyndin er sú að samræðurnar voru hljóðritaðar, þótt Gunnar Braga hafi ekki grunað það. Og staðreyndin er líka sú að Sigmundur Davíð hefur alltaf sent reikninginn eitthvert annað en á sjálfan sig.
Hver fær svo reikninginn af öllu þessu ævintýri þegar upp er staðið? Sennilega Gunnar Bragi Sveinsson. Þegar hann kemur aftur af klósettinu. Að öllum líkindum er stjórnmálaferli hans lokið en Sigmundur Davíð mun reyna að sitja af sér storminn.
Því Sigmundur Davíð er búinn að senda reikninginn. Fyrst segir hann að hann hefði átt að stoppa þetta — og sendir þar með reikninginn á samflokksmenn sína. Síðan talar hann um hræsni þeirra sem hneykslist en séu engu skárri sjálfir — og sendir þar með reikninginn á … alla.
Jafnvel þótt ekki þurfi að grípa víða niður í upptökurnar af Klaustri til að verða þess áskynja að svo mikil persónudýrkun ríkir í hópnum að allir viðstaddir eru hreinlega að spila allt sitt apaspil fyrir Sigmund Davíð.
Það er ekki hægt að reka þingmenn. Það getur enginn axlað ábyrgð fyrir þingmann annar en þingmaðurinn sjálfur. Forsætisnefnd getur ekki gert neitt nema að álykta. Siðanefnd getur ekki gert neitt nema að álykta. Sama er hvernig ályktanirnar hljóða, ekki er hægt að reka þingmenn. Hverjir bíða tjónið? Sennilega öll þjóðin. Hvers vegna ætti hún að treysta Alþingi sem hegðar sér svona? Hví skyldi hún treysta þingmönnum sem stæra sig af spillingu sinni? Það er engin ástæða til þess. Og aursletturnar munu ná yfir þingið allt, ekki bara suma flokka heldur alla.
Við fáum öll reikninginn, við gistum öll í herbergi 305.
Við höfum ekki efni á þessum reikningi. Það er kominn tími til að herbergi 305 sendi reikninginn þangað sem hann á heima: Til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.
Hermann Stefánsson er höfundur fjölda bóka og vakti mikla athygli fyrir skáldsögu sína Leiðin út í heim sem tilnefnd var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hlaut einróma lof gagnrýnenda.





