Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Jodie Foster mun fara með hlutverk Halldóru Geirharðsdóttur

$
0
0

Jodie Foster segist ekki geta beðið eftir því að fara með hlutverk Höllu í endurgerð kvikmyndarinnar Kona fer í stríð en framleiðslufyrirtæki hennar hefur tryggt sér réttinn á endurgerð kvikmyndar Benedikts Erlingssonar í Bandaríkjunum, Deadline greindi frá. Framleiðandi Benedikts hin danska Marianne Slot mun verða meðfranleiðandi myndarinnar í Bandaríkjunum og mun Jodie sjálf leikstýra kvikmyndinni. Þetta verður fimmta leikstjórnarverkefni Jodie Foster.

Í endurgerðinni verður sögusviðið flutt til Bandaríkjanna og segir Jodie að hún hafi orðið yfir sig hrifin af myndinni. „Ég er ákaflega spennt fyrir því að endurgera þessa fallegu og innblásnu sögu hér í Bandaríkjunum. Halla berst fyrir jörðina, sterk kona sem fórnar öllu til að gera það sem rétt er en auðvitað gengur það ekki alveg áfallalaust.“

Kona fer í stríð eða Woman at War var frumsýnd í Cannes þar sem handritið sem er eftir Benedikt Erlingsson og Ólaf Egilsson vann gagnrýnendaverðlaunin. Síðan hafa kvikmyndin og Halldóra í hlutverki Höllu sópað til sín verðlaunum um allan heim.

Halldóra Geirharðsdóttir var meðal annars tilnefnd til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna fyrir hlutverk sitt en verðlaunaafhendingin fer frá í borginni Sevilla, Spáni 15. desember næstkomandi.

Kvikmyndin Kona fer í stríð í leikstjórn Benedikts Erlingssonar er framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2019.

Kona fer í Stríð keppir um Óskarinn

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images