Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ríkisendurskoðun mælti með að sendiherrastöður yrðu auglýstar

$
0
0

Vorið 2015 skilaði Ríkisendurskoðun til Alþingis skýrslu um „rekstur og starfsemi sendiskrifstofa Íslands“. Voru þar færðar fram fimm tillögur til úrbóta. Ein þeirra var hvatning til að sendiherrastöður yrðu auglýstar, en ekki veittar af ráðherra á undanþágu frá ákvæðum Laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Undanþáguna sem um ræðir er að finna í Lögum um utanríkisþjónustuna. Í skýrslunni sagði að með því að falla frá undanþágunni og auglýsa stöður sendiherra, eins og annarra embættismanna, mætti stuðla „að auknu gagnsæi, jafnræði og vandaðri stjórnsýslu við skipanir í stöður sendiherra.“

Synjun ráðuneytisins

Svör Utanríkisráðuneytisins við ábendingum Ríkisendurskoðunar birtust samhliða úttektinni. Í svörunum féllst ráðuneytið á allar ábendingar nema þessa einu, sem það hafnaði. Ráðuneytið rökstuddi afstöðu sína með því að „stærsti hluti sendiherraefna“ komi „úr röðum reynslumeiri starfsmanna utanríkisþjónustunnar, enda hafa þeir byggt upp staðgóða þekkingu á sviði alþjóðasamskipta og stjórnmála, starfi alþjóðastofnana og milliríkjaviðskipta á löngum tíma.“

Þó er einnig tekið fram, í svari ráðuneytisins, að „sambærilega þekkingu og reynslu“ sé „unnt að öðlast í öðrum störfum“, og beri að „meta hana eins og aðra þekkingu og reynslu“. Sendiherraefni „t.d. úr stjórnmálum, viðskipta- og menningarlífi“ búi yfir „mikilli reynslu af sambærilegum störfum“, hafi „ríka þekkingu á alþjóðamálum“ og séu „góð viðbót við mannauð ráðuneytisins“.

Í fljótu bragði er ekki ljóst hvernig þá niðurstöðu að sendiherrastöður skuli ekki auglýstar leiðir af þeirri forsendu að ýmis reynsla komi þar í góðar þarfir. Eftir stendur að lagaákvæðinu var ekki breytt, undanþágan stóð og sendiherrastöður eru ekki auglýstar.

Áminning Ríkisendurskoðunar

Þegar Ríkisendurskoðun fylgdi úttektinni eftir með skýrslu til Alþingis í mars 2018 hafði að mati stofnunarinnar verið brugðist með fullnægjandi hætti við öllum ábendingum 2015-skýrslunnar, nema þessari einu. Þar sem ráðuneytið hafði lýst sig ósammála ábendingunni sagðist Ríkisendurskoðun ekki sjá „tilgang með að ítreka ábendinguna en minnir engu að síður á sjónarmið um gagnsæi, jafnræði og vandaða stjórnsýslu við ráðningu ríkisstarfsmanna“.

Utanríkisráðherra árið 2015 var Gunnar Bragi Sveinsson.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images