Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Þegar íslenskur þingmannssonur villtist í skógi leituðu hersveitir hans —og fundu

$
0
0

Fyrir rúmum 20 árum síðan, í ágúst 1997, villtist ungur íslenskur þingmannssonur í frumskógi í Mið-Ameríku. Þetta var á laugardegi. Þegar maðurinn uppgötvaði að hann væri villtur gerði hann „það eina rétta í stöðunni“, eins og Morgunblaðið hafði eftir föður hans, „með því að halda kyrru fyrir.“

Daginn eftir að ungi maðurinn villtist uppgötvaðist á hótelinu þar sem hann dvaldi að hann væri týndur. Þegar þingmaðurinn faðir hans frétti af því ræddi hann við utanríkisráðherra, sem hafði umsvifalaust samband við sendiherra Íslands í Washington. Sá hafði samband við sendiherra Guatemala í Washington og sendiráð Bandaríkjanna í Guatemala og ákvað að ritari íslenska sendiráðsins héldi til Guatemala með næsta flugi.

Á mánudeginum, tveimur dögum eftir að ungi maðurinn villtist í skóginum, gerðu yfirvöld í Guatemala út hersveitir til að leita hans. Í frétt Morgunblaðsins af málinu er haft eftir föðurnum að leitin að syni hans hafi þó „ekki hafist af fullum krafti fyrr en á þriðjudag“, það er þremur dögum eftir að hann villtist. Þá voru loks kallaðar út „viðbótarhersveitir“ til leitarinnar. Og þyrlusveitir.

Þyrlusveit sem áfallahjálp

Ef marka má frétt Morgunblaðsins voru þyrlurnar í og með ætlaðar til áfallahjálpar: „Þyrlur flugu yfir svæðið,“ segir þar, „einkum í þeim tilgangi að Einar heyrði í þeim og vissi þá af því að leit væri í gangi.“ Þetta kom að beinu gagni við leitina að því marki að þingmannssonurinn varð var við þyrlurnar og hélt áfram kyrru fyrir. Að sögn föðurins.

Sá týndi fannst eftir hádegi á þriðjudag „og hafði þá verið þrjá sólarhringa í skóginum“ að sögn blaðsins. Hann reyndist „illa bitinn af moskítóflugum og með snert af malaríu“ en „fékk strax aðhlynningu og var fluttur í nálæga borg. Síðan var flogið með hann til Guatemala-borgar og gekkst hann undir læknisskoðun þar.“ Þegar frétt Morgunblaðsins var skrifuð lá fyrir að maðurinn myndi næst ferðast, í fylgd sendiráðsritarans, til Bandaríkjanna og dvelja þar, þangað til fyrir lægi að hann hefði náð nægri heilsu til að þola flug til Íslands.

Haukur Hilmarsson

En hvar er Haukur?

Þessari rúmlega 20 ára gömlu frétt deildi Kristján Sigurður Kristjánsson á Facebook á fyrsta sunnudagsmorgni ársins, þann 6. janúar 2019. Þá voru tíu mánuðir liðnir frá því að fyrstu fréttir bárust af hvarfi Hauks Hilmarssonar í Sýrlandi. Fulltrúar íslenskra stjórnvalda segjast aðspurð hafa gert allt sem í þeirra valdi stendur til að komast að raun um afdrif Hauks. „Ég hef gert allt sem í mínu valdi stendur til að hjálpa til í þessu máli,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson síðast á þingi þann 8. nóvember. Engar vísbendingar hafa komið fram um að það sé raunin.

Tyrkneskir ráðamenn og fjölmiðlar segja tyrkneska herinn bera ábyrgð á dauða Hauks, og hafa fullyrt það frá 6. mars 2018. Enn hefur lík Hauks þó ekki komið í leitirnar eða upplýst um hvar það er niðurkomið. Ljóst er að íslensk stjórnvöld hafa ekki beitt tyrknesk yfirvöld neins konar þrýstingi til að svo megi verða og raunar bendir fátt til að þau hafi yfirleitt beðið eða spurt. Utanríkisráðherra virðist líta á það sem einhvers konar málalyktir að hafa „fengið staðfest eftir mörgum leiðum að þarlend stjórnvöld telji Hauk af“. Og einhvers konar eftirfylgni að „íslensk stjórnvöld munu einnig tala áfram fyrir aukinni virðingu fyrir mannréttindum og alþjóðlegum mannréttindum í Tyrklandi og annars staðar í tvíhliða samskiptum og á alþjóðavettvangi eftir því sem tækifæri gefst“.

Þingmaður færir ráðherra blóm

Við upprifjun fréttarinnar um viðbrögð íslensku utanríkisþjónustunnar þegar þingmannssonur villtist í skógi skrifaði Kristján Sigurður, á Facebook:

„Ég man þetta af því mér fannst þetta ánæjulegt stílbrot miðað við hvaða þjónustu Leifur Müller fékk og aðrir eftirgöngumenn hans. Þó ég ætli ekki að bera þá Einar Ágústssson og Ólaf Pétursson, sem fékk svipaða þjónustu hjá Bjarna Benediktssyni utanríkisráðherra, saman fékk ég slæma tilfinningu þegar Ágúst Einarsson alþingismaður færði Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra blóm á heimili hans. Mér fannst það einkar óviðeigandi auglýsing um einka-eignarhald sumra á utanríkisþjónustunni.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images