Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Urðum við löt, vitlaus, hjárænuleg eða huglaus?

$
0
0

Kvennablaðið ber þá skömm með öðrum fjölmiðlum landsins að hafa hér um bil ekkert gert úr því að á sunnudag og mánudag voru tíu ár liðin frá fjölmennustu, áköfustu og afdrifaríkustu mótmælum landsins, búsáhaldabyltingunni, sem leiddi til stjórnarbyltingar með afleiðingum sem enn sér ekki fyrir endann á í íslenskum stjórnmálum og menningu.

Hvað veldur? Á Kvennablaðinu getum við borið því við að ritstjórnin er fáliðuð, en það er ekki nægileg útskýring eða alfarið heiðarleg. Í það minnsta einn blaðamaður miðilsins finnur ekkert ærlegra svar en að hann nennti bara ekki. Það er ekki heldur fullnægjandi skýring.

Er viðfangsefnið of flókið? Er einfaldara að taka afstöðu til þess hvar Seðlabankinn hengir málverkin sín en greina inntak og afdrif andófsins síðustliðinn áratug? Hvort erum við þá orðin svona löt, svona vitlaus, svona hjárænuleg eða svona huglaus?

Þingflokkur Pírata heiðraði tíu ára afmælið með því að leggja mánudaginn 21. janúar fram frumvarp til nýrrar stjórnarskrár, sem byggir á því lýðræðislega ferli sem fram fór í kjölfar uppreisnarinnar. Fjölmiðlar virðast aftur á móti í fljótu bragði, heilt yfir, ekkert hafa unnið sér til málsbóta.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images